Dónt mænd if æ dú.
Tekur byssu og plaffar í áttina að aumingjanum
Piff. Hvað næst? Langvarandi heimsóknir á hxxx.is?
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Þetta voru mistök ég veit það!
Brestur í óstöðvandi grát
Já iðrastu bara! Iðrastu!
Farðu með Stairway to Heaven 15 sinnum og kauptu Pixies disk í iðrunarskyni.
Rokkmerkir aulann
Megi Jimi Hendrix miskunna sálu þinni.
mmmm pixies
Síðast keypti ég mér ekki disk, heldur fékk hann bara(takk aftur!).
Sá diskur er nýi diskurinn með Hjálmum og hann er bara assgoti góður.
Ég var að fá gefins Nirvana-safnið. Það er hreinn eðall.
Síðasti diskurinn sem ég keypti mér var ekki einn, heldur fjórir saman. Það voru: Paul McCartney, Chaos and Cration in the Backyard; John Lennon, Working Class Hero - The Definitive Lennon; Rammstein, Rosenrot - Limited Edition; og svo Hjálmar, Hjálmar, líkt og Furðuvera. Blikkar og kinkar kolli
Við köngulóaraparnir erum þjófóttir að eðlisfari.
Þess vegna hef ég ekki keypt tónlist, leiki eða kvikmyndir um langa hríð, stel bara öllu saman og brenni mína eigin diska.
Þó er ein undantekning þar á. Hef þegar keypt þrjú eintök af Pabbi þarf að vinna og á eftir að kaupa fleiri þegar kemur að jólagjafaæðinu. xT
fann þá ekki í Hagkaup skeifu fyrir nokkrum dögum. Er upplagið uppselt?
Síðast þegar ég keypti disk þá urðu þeir allmargir sökum útsölu:
The Doors-The Doors, The Soft Parade-The Doors, Led Zeppelin-Led Zeppelin, In Trough The Out Door-Led Zeppelin, Hartattack and Wine-Tom Waits, Foreign Affairs-Tom Waits.
Þetta eru ein skemmtilegustu tónlistarkaup sem ég hef gert ef frá eru talin vínylkaup sem ég gerði í kolaportinu fyrir nokkru.
Ég var að kaupa disk með öllum dönskum sögnum sem til eru. Vá hvað öll kvöld verða skemmtileg.
Starir þegjandi út í loftið
Ég keypti síðast Mozart in Egypt, vegna meðmæla í 12 tónum.
Baggalút að sjálfsögðu, Pabbi þarf að vinna..........
Á undan honum keypti ég: Baggalút að sjálfsögðu, Pabbi þarf að vinna..........
Og á undan honum keypti ég : Baggalút að sjálfsögðu, Pabbi þarf að vinna..........
Ég held að ég þurfi ekki að fara í fleiri afmælisveislur fyrir jól.
R E M (AROUND The sun)
Tæknilega séð er ég búinn að kaupa þá þó þeir séu enn í skipi eða flugvél á leið frá stóru stóru landi:
Conquest og Demons and Wizards(Uriah Heep), The Mad Cap Laughs(Syd Barrett), Deep Purple(Deep Purple), Electric Collection(Ramsey Lewis) og Greatest Hits með Dave Brubeck.
Bíð ég núna spenntari en Matlock fyrir lokaræðu.
Guapo: five suns
Guapo: Black Oni
System of a Down: Hypnotize
Hvers vegna fékk Pabbi þarf að vinna enga Evrópudreifingu? Ég hef enn ekki getað hlustað á diskinn sökum landfræðilegra örðugleika!
Blótar herfilega og rífur hár sitt, en brestur svo í óstöðvandi grát
Hvers vegna fékk Pabbi þarf að vinna enga Evrópudreifingu? Ég hef enn ekki getað hlustað á diskinn sökum landfræðilegra örðugleika!
Blótar herfilega og rífur hár sitt, en brestur svo í óstöðvandi grát
Þú finnur þá bara krókaleiðir, það er alltaf hægt að fá svona hluti senda. Þú hlýtur nú að þekkja einhverja sem búa á Íslandi.