Við þessa umræðu þá kvikna hugrenningatengsl frá upphafsárum litasjónvarps þegar Silfurkórinn söng af plötu sinni "Stuð Stuð Stuð" í sjónvarpssal: "Það er stuð, stuð, stuð feykimikið stuð út allt´...í alla nótt"
Ég er nýr hérna og þarf að skrifa tíu innlegg til að fá að laga prófælinn minn. Ég hef ekki keypt diska lengi en síðast voru mér gefnir Medulla með Björk og Mugimama með Mugison. Auðvitað verður maður að styðja íslenska list á heimsmælikvarða þegar listamennirnir nenna að gera almennileg hulstur utan um músíkina.
Vér keyptum síðast nokkuð af tómum DVD-diskum til að skrifa á ýmiskonar efni. Hvernig það efni varð til skiptir máli, það er nefnilega nær allt búið til af oss en samt þurftum vér að greiða Stefgjöld af diskunum er vér keyptum þá. Fáránlegt kerfi Býr sig undir að 'innheimta' Stefgjöldin til baka
Hvað ætli kæmi út úr því ef einhver tæki sig til og mætti með alla þá fyrrverandi tómu geisladiska sem hann hefur skrifað frumsamið efni á og heimtaði að fá endurgreidd stef-gjöldin. Ætli það væri þess virði að fara með þetta fyrir dóm ?
-
Ég keypti mér síðast safndisk með Mariu Callas og annan með ljóðasöngvum eftir Schubert.
Ég keypti Hjálma í gær og ætla að kaupa Juxtapos með Búdrýgindum þegar litlu elskurnar mæta með hann heim til mín og selja mér hann á 1500 kall!
Hvaða lúxus er það að fá svona heimaþjónustu? Pant vera með! Ljómar upp
Nei, er til svona þráður?
Ég var að kaupa nýja White Stripes diskinn, Get Behind Me Satan.
Á enn eftir að hlusta á hann en ég vona að hann sé vel blúsaður.
Starir þegjandi út í loftið
Það er langt síðan ég verslaði mér disk, en ætli það hafi ekki verið Army of Darkness tónlistin.
Næst er það svo Jeff Wayne's War of the Worlds, enda eðaltónlist þar á ferð.
Síðast keypti ég mér The Essential Bob Dylan.
Það er eins gott að næsti geisladiskur sem þið kaupið verði Pabbi þarf að vinna...
Það er eins gott að næsti geisladiskur sem þið kaupið verði Pabbi þarf að vinna...
Er ekki hægt að rippa hann bara?
Hleypur út úr ritstjórnarskrifstofunni, hlæjandi eins og smástelpa (þó dimmraddað)
Síðast þegar ég keypti mér geisladisk, keypti ég mér nokkra í einu.
Somewhere in Time og Virtual XI, báðir með Iron Maiden á 2 fyrir 2200 kr. tilboði, Get Behind me Satan með White Stripes og Andstaða með íslensku pönksveitinni Rass.
Næsti diskur verður hinsvegar án nokkurs vafa Pabbi þarf að vinna.
Síðast keypti ég disk með víkingahljómsveit er ber nafnið Krauka.
Ég keypti mér Pottþétt 10 ára.
Dreifir byssum á liðið og stendur grafkyrr
Já svona skjótið mig...