Til landsins er að koma góður gestur, kínverjinn Luo Gan frá skrifstofu 610, sérfræðingur í að takast á við Falun Gong liða (en naumlega tókst að forða á sínum tíma að þeir fremdu hryðjuverk hér á landi með leikfimiæfingum og gulum fánum). Hann verður í góðum hópi hér á landi með þeim Gogga í Úniforminu (a.k.a. Georg forst. Útlendingastofnunar) og Gullfugli lögreglustjóra (a.k.a. Haraldur ríkislögr.stj).
Í tilefni af þessar hátíðlegu stund setti ég saman litla vísu:
Gleðjast saman með glösin full
glóir á borða og hnappa.
Kínverjinn brosir og fer með bull
um bévítans sértrúarhrappa.
Ef einhver er með betri botn eða fyrripart, endilega látið það flakka.
Falungong Njarðvíkur-skóla fangar
ferðast um heiminn og plotta.
Er fer sem horfir en engann langar
ef fáum við í hausinn fána og spotta
Hryðjuverk framin, hugleysingjar
harla glaðir og fánum skrýddir.
Leikfimi, grimmir dugleysingjar
varla lengur vopnum prýddir.
Kínverjinn litli er ljótur
lúsífers helvískur þrjótur
kveikinn skal finna
kveikjarann spinna
spryngur þá sperðillinn fljótur
Stekkur hæð sína
Á torgi hins himneska friðar
tekur upp byssu og miðar
morðin svo fremur
frelsið hann kremur
í skinninu iðar
Luo Gan með gráan her
gargar uppi'í hlíðinni
,,áfram nú með okkar smjer"
undir kúlnahríðinni
,,torgið rautt nú tónum vér
tjóðrum frelsislýð inni
munar kannski um keppi hér
í kommasláturtíðinni?!"
Stúdentum hann stútar fljótur,
stjarfur, virðist krónískt glaður.
Ógurlega er hann ljótur
ekki stærri maður.
(botninn tekinn að láni úr "níðvísa um Björn")
Þakka viðtökur við þessu umfjöllunarefni. Hér er smásálmur sem beint er til Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, en nú virðist hann hafa gleymt öllu sem hann sagði þegar Falun-gong málin voru sem fyrirferðamest fyrir rúmu ári. Sálminn er (líklega) hægt að syngja við þekkt írskt lag; Oh Danny boy.
Ó Bóbó minn, senn slokknar lífs vors logi
síðan leggst yfir okkur nákalt húm.
Þinn var strengdur lífsins létti bogi
um lágnættið þú drógst loksins upp í rúm.
Því er það skítt að þú gekkst bak þinna orða
þín mótmæli nú ekki nokkur man.
Þú ruglaðist er þú komst aftur til metorða
og bauðst stúdentaslagtaranum Luo gamla Gan.
Faloon Gong er bara bull
burt með þessa hrappa!
Höfum ekkert við þessa Faloon Gong-geðsjúklinga að gera hér á landi...uss sveiattann verið heima hjá ykkur standandi á haus í páskalitunum...
Faloon Gong er bara bull
burt með þessa hrappa!
Höfum ekkert við þessa Faloon Gong-geðsjúklinga að gera hér á landi...uss sveiattann verið heima hjá ykkur standandi á haus í páskalitunum...
Davíð?
Davíð?[/quote]
Ekki ber ég nafnið Davíð. Á þetta kannski að vera einshverskonar sneið?
Davíð?
Ekki ber ég nafnið Davíð. Á þetta kannski að vera einshverskonar sneið?
Krull?