veltir því fyrir sér hvort Viskí sleppi ekki bara þokkalega
Hér er gott erlent ljóð sem ég rakst á einhvern tíma... gerir grín að stjörnuspámönnum eftir Michael Flanders:
Jupiter's passed through Orion
And coming to conjunction with Mars
Saturn is wheeling through infinite space
To its pre-ordained place in the stars
And I gaze at the planets in wonder
At the trouble and time they spend
All to warn me to [i]be careful[/i]
In dealings involving a friend.
Betelgás blikaði rauður
bjarma af mána slær.
Helvítis hundurinn dauður
hengdi sig snemma í gær.
Efni í fyrsta flokks stjörnuskoðunarfélag, sé ég. Og enn einn kvengestur reynist hafa áhuga á viskí -- skál fyrir því, Nornin góða!
dregur fram viskíflösku í því tilefni
Manni líður betur vitandi það, að það hlýtur að sjást stjörnuhröp og annað áhugavert í til himnis óháð veðrinu, drekki maður bara nœgilega mikið.
"The Liquid Planetarium Society" köllum við það.
Efni í fyrsta flokks stjörnuskoðunarfélag, sé ég. Og enn einn kvengestur reynist hafa áhuga á viskí -- skál fyrir því, Nornin góða!
dregur fram viskíflösku í því tilefni
Manni líður betur vitandi það, að það hlýtur að sjást stjörnuhröp og annað áhugavert í til himnis óháð veðrinu, drekki maður bara nœgilega mikið.
Skálar við Júlíu
Viskí er gott. Koníaki hef ég hins vegar ekki smekk fyrir.
Fær sér vískístaup þó dagurinn hafi vart hafist
Enn einn Akademíu þráðurinn orðinn að skálþráð sé ég.
Ó jæja, skál kvennsur
Áfengi göfgar andann Hóras minn. Gerir mann meðtækilegri.
Og stundum meðfærilegri, en bara stundum.
HAHAHA þið eruð öll snillingar, þrátt fyrir þessa fötlun sem fylgir því að vera mennsk...eða af andakyni...
Skálar við Júlíu
Nú, er Júlía mœtt hér líka? Viskíneysla er ekki beinlínis sérgrein drottningar vorrar.
leitar að Júlíu
Ef hér á að stofna stjörnuskoðunarfélag leggjum vér hér með formlega til að eigi verði blandað saman þeirri athöfn að annarsvegar horfa til himins (þar sem alvörustjörnur sjást) og hinsvegar að neyta áfengis (er líka getur leitt til að stjörnur sjáist, reyndar eigi alvöru) heldur einungis annað af þessu gert í einu. Sé horft á stjörnur og önnur fyrirbæri himinsins er nefnilega æskilegt að nætursjónin sé í fullkomnu lagi svo og að skerpa sjónarinnar sé í hámarki en áfengisneysla ku geta haft miður heppileg áhrif á þetta tvennt og þó einkum hið síðarnefnda Fer að kanna hvort stjörnuþokunafnið 'Alcohol Nebula' sé til
Veit ekki hvort það nafn er til, en fyrir einhverjum árum síðan fannst ský úti í geimnum sem var úr alkóhóli að stærstum hluta. Þá taldi ég að himnaríki væri fundið og tel enn.
Koníak er nauðsynlegur hitagjafi á köldum vetrarnóttum.
Skálar við Júlíu
Nú, er Júlía mœtt hér líka? Viskíneysla er ekki beinlínis sérgrein drottningar vorrar.
leitar að Júlíu
Nornin viðurkennir að hafa ekki verið að horfa framan í viðmælanda sinn þegar hún mælti þessi orð. Rödd Mosu er greinilega svona geypilega lík rödd drottningar. Ég var að horfa á alla þessa myndarmenn hér.
skammast sín fyrir að vera alltaf að horfa á karlmenn, en getur ekkert að því gert
Skál Mosa vildi ég sagt hafa.
Hefur augun lokuð þar til hún nálgast dyrnar til að verða ekki fyrir meiri truflun