19. nóvember um kl. 2149 Greenwich-tíma verður hápunktur árlegrar stjörnuhríðar sem kennt er við Ljónið: Leonidar. Ég býst við að það verði nœgilega dimmt á Fróni til að geta séð fjöldi stjörnuhröp (sé Hakuchi til í að stilla veðurvélinni ...)
Varla verður þessir Leonidar eins magnað og í 2001: http://www.spaceweather.com/meteors/gallery_18nov01.html ein það var eindœmis gott Leonid-ár.
Góða stjörnuhrapaskemmtun.
Reynir að botna í tímastillisleiðbeiningum veðurmaskínunnar. Stillir inn tíma með fjarstýringunni.
Þetta gæti orðið athyglisvert.
Hlakka til að horfa á lofsteinarregnið annað kvöld. En Hakuchi, fyrst þú nú á annað borð ert að fikta í þessari verðurvél þinni, gætirðu þá ekki hækkað hitann aðeins og minnkað blásturinn?
Sjálfsagt.
Tekur blástursstigið af 'Dagur B. Eggertsson blæstri' niður á 'Davíð Oddson blástur'. Setur hitann á 'lífvænlegt'.
Til fróðleiks má geta þess að vér sáum Leonítana fyrir fáeinum árum árum (líklega 2001) og var það glæsileg en samt lítillega vonbrigðablandin sjón því líkur voru taldar á einhverju enn meiru en þá sást. En er mest var sáum vér nokkra á mínútu, sumir voru mjög bjartir, þ.e. á við björtustu stjörnur og einn ótrúlega bjartur, margfalt bjartari en nokkur stjarna.
Ekkert slær samt 1966 út en þá sáust nokkrir tugir stjörnuhrapa á sekúndu er Leonítarnir voru í hámarki. Óskar þess að tímavélin gæti einhverntíma virkað eins og til er ætlast
Ekkert slær samt 1966 út en þá sáust nokkrir tugir stjörnuhrapa á sekúndu er Leonítarnir voru í hámarki. Óskar þess að tímavélin gæti einhverntíma virkað eins og til er ætlast
Jú jú. Ég man vel eftir því - árið sem ég varð afi.
Hvar ætli sé best að sjá þá hér í grend reykjavíkur?
Er ekki of bjart eins og í heiðmörk t.d.?

Hagræðir pokanum
Hvar? Hvar?
Hvar ætli sé best að sjá þá hér í grend reykjavíkur?
Er ekki of bjart eins og í heiðmörk t.d.?
Því meira myrkur því betra en það er þó vel hægt að sjá þetta innan borgarmarkanna þrátt fyrir mikla og víða óhóflega götulýsinguUndirbýr 'samningaviðræður' við rafmagnsveituna
Ahhhh...nú er gott að vera í sveitinni (nei ,ég er ekki að skamma Tinna). Í kvöld ætla ég að leggjast út á hjarnið með koníaksflösku í hönd, horfa til himins og vona að þessi helvítis ský láti sig hverfa.

Þetta er þjóðráð... maður má ekki klikka á þessu...
Það er spurning hvort við náum að verjast þessari árás jafn vel og seinast. Mér skilst að einungis nokkur geimför hafi sloppið í gegn og var það víst hetjudáðum geimvarðliðsins að þakka. Marsbúarnir hljóta að fara að gefast upp á þessu bráðum.
Ók út í myrkrið, slökkti ljósin og drakk úr einni koníaksflösku; sá ekki neitt. Ók heim aftur.
veltir fyrir sér hvernig það væri að stofna stjörnuskoðunar- og koníaksklúbb sem hittist reglulega hvort sem það er skýjað eða ekki
veltir því fyrir sér hvort það sé ekki bara þokkalegur áhugi fyrir hugmynd Ívars
veltir fyrir sér hvort Skabbi hafi ekki nokkuð til síns máls