Enn og aftur er ég sammála. Þótt ég sé ekki tepra. Áfram Hlessi!!!
Ég nota mikið aðgerðina „Hvað er nýtt“ til að sjá hvaða lifandi umræður er í gangi. Mig grunar að þetta eigi við um fleiri.
Tveir hnökrar eru á þessari aðgerð.
Annar hnökurinn er sá að í yfirlitinu er sýnt hverji er frummælandur þráðanna á listanum. Það eru lítt fréttnæmar upplýsingar og fyrir vikið lítt áhugaverðar. Mun fróðlegra væri að vita hver það var sem síðast tjáði sig á þræðinum.
Hinn hnökurinn er sá að eins og bara sumir vita (þeir sem ekki vita vinsamlega hætti að lesa því þetta er leyndarmál) þá eru hér viss svæði sem er u bara fyrir vissa aðila sem uppfylla viss skilyrði. Umræður þar koma ekki fram í niðurstöðum leitar, ekki einusinni fyrir innvígða.
Ég legg til að þessu verði breytt á þann veg að menn sjái öll nýjustu svörin í öllum þeim þráðum Baggalúts sem viðkomandi menn hafa á annað borð leyfi til að lesa. Inni í þessu felst að upplýsingar um ný svör á Næturgeltinum yrðu aðeins birt mönnum meðan Gölturinn er opinn.
Háæruverðuga yfirvald, er þetta ekki heillaráð?
Hvaða væl er þetta!?
Því má við þetta bæta, þó flestir mælenda þráðarins séu horfnir á braut að þessu hefur verið kippt í lið.