Nú einskonar kenning sem sannar allt. Þar á meðal sjálfa sig.
Ég bind miklar að minnsta kosti miklar vonir við að hún sanni endanlega að Stefán Jón Hafstein sé ómerkilegur pappír í besta falli.
Það má nú sanna með einföldu dæmi, reyndu bara að krota eitthvað á hann.
Já, ég hef heyrt þessa getið. Nú er ég enginn sérfræðingur, og einnig er langt síðan ég hef grúskað í þessu, en ég get svosem reynt að útskýra þetta.
Þessi svokallaða Kenning um allt á lítið skylt með Lífinu, sannleikanum, og öllu, eins og sumir gætu haldið. Þvert á móti er þetta frekar hversdagsleg kenning, sem er reyndar ennþá ekki komin fram, eftir því sem ég veit best. Í grundvallaratriðum er hér um að ræða kenningu sem útskýrir alla fjóra grunnkrafta heimsins, en þeir eru veiki kjarnakrafturinn, sterki kjarnakrafturinn, rafsegulkrafturinn, og þyngdarkrafturinn. Notkun þessa hugtaks yfir kenningu af þessu tagi mun víst hafa átt uppruna sinn í samnefndri bók eftir eðlisfræðinginn bæklaða, Stephen Hawking.
Síðast þegar ég vissi þá var komin kenning sem útskýrir alla þrjá fyrstnefndu kraftana, en þyngdarkrafurinn hefur vafist fyrir mönnum, enda er hann frekar sér á parti.
Ég vona að þetta sé að einhverju leyti skiljanlegt.
Ef þetta er þýðing á 'Grand Unified Theory' finnst oss þetta svolítið skrítin þýðing...
Nei, á frummálinu ku þetta víst vera 'Theory of Everything', og ég er sammála því að þetta er full reyfarakennd nafngift.
Grand Unified Theory er svo annar handleggur - það er kenning áþekk Theory of Everything, nema hún tekur ekki þyngdarkraftinn með.
Einfalt, ekki satt?
Ég þakka hrósið. Það er meira að segja frekar grunnt á nirðinum þó ég segi sjálfur frá.
Sér Þarfagreini baðaðan ljósi Heill þér, þú mikli Þarfagreinir.
Stendur stórmannlega, með nefið upp í loftið
Hyllið mig, Bagglýtingar!
Skýtur dráttargeisla úr puttanum og festir bauv í honum
Stans! Þú ferð ekki neitt, púkinn þinn!