Heyrði ég rétt? Var einhver að nefna Ákavíti?
Starir þegjandi út í loftið
Ég er sannfærður um að Steinunn verður fín í þessu embætti og hafi verið lang besti kosturinn af innanbúðarliðinu, amk mun fremri en Dagur Bé.
Mosinn á veggjum gamla kirkjugarðsins hefði verið betri borgarstjóri en Dagur Bé.
Mín mistökBrestur í óstöðvandi grát. Þetta átti bara að vera skondiðStarir þegjandi út í loftið
Ekki gráta strákur, ég er bara tepra...hvar er svo Ákavítið Vamban?
Gessovel!Bendir í átt að fraktara Þarna í gámunum.
Mín mistökBrestur í óstöðvandi grát. Þetta átti bara að vera skondiðStarir þegjandi út í loftið
Ekki gráta strákur, ég er bara tepra...hvar er svo Ákavítið Vamban?
Skabbi minn, þú ert ekki tepra. Þú ert heiðursmaður með sómakend og átt mikið lof skilið fyrir framgöngu þína hér sem annarsstaðar.
Nú er gott að búa ekki í Reykjavík, annars yrði maður að flytja - og vera snöggur að því
Ekki flytja í Kópavog. Hér er allt eins rotið og það getur orðið. Bæjarstjórnardúettinn hér þyrfti að segja af sér nokkrum sinnum á dag ef hann ætlaði að fylgja fordæmi Þórólfs.
Orð að sönnu.
Horfir yfir breiður af beygluðum Súbarúum og Nissum sem ótrúlega auðvelt er að eignast og Skabba liggjandi í hálfum gám af ákavíti í miðri breyðunni.
Skabbi andskotinn. Þó maður fái sér í annan fótinn, er það engin ástæða til að stela fraktaranum og sigla honum upp í Elliðaár.
Er það dúett sem stjórnar Kópavoginum núna?
Gunnar græddi á öllu þessu einn, það er málið, punktur.
Æ, mér fannst ég verða að leyfa honum Geirdal greyinu að fljóta með þó hann sé algjör gufa. Hann má nú eiga það að hann hefur getið af sér gott skáld.
En það er rétt að Gunnar semur við sjálfan sig og græðir á tá og fingri. Hann er skíthæll.
Sammála Skammkeli um Gunnar. Ég vann mörg sumur í byggingariðnaðinum og þar heyrði maður vægast sagt slæmar sögur um bísness Gunnars í Kópavogi. Jafnvel var hvíslað um mútugreiðslur. Það er merkilegur vitnisburður um ömurleg gæði blaðamennsku hér á landi að ekki sé búið að roðfletta ofan af þessum manni. Held það þyrfti ekki að grafa djúpt til að komast í saurinn.
HMMM! DAKK!
Fær sér gúlsopa og þurrkar munninn með skítugu handarbakinu
ENN BETUWA Á BHAGGALÚTI!
Skál!
Gunnar er einn skandall út í gegn.
Hann kemst upp með, sem formaður menntamálanefndar Alþingis, að setjast á mál (jafnvel frá meirihlutanum) og koma í veg fyrir að þau fá afgreiðslu eða umsögn. Hann einfaldlega tekur málið ekki fyrir.
Steinunn verður sjálfsagt ágætur borgarstjóri. Og hvað varðar meint karakterleysi hennar er ég alls ekki sammála. Mér hefur einmitt fundist hún koma ágætlega fyrir, þó hún sé ekki rífandi kjaft á báða bóga. Það er kostur í svo valdamiklu starfi að geta verið diplómat en hún kemur mér þó ekki þannig fyrir sjónir að hún láti vaða yfir sig. Gefum henni tíma til að sanna sig.strokar nafn Hakuchis út af dauðalistanum þegar lítið ber á
Leitar að sjens í vasanum... finnur ekkert átt þú nokkuð?
Iss, af hverju er verið að gera svona mikið veður út af borgarstjóra? Hvaða assvítans foringjadýrkun er þetta? Þetta er bara embættismaður, völdin liggja annars staðar. Er ekki pupullinn skýrari en svo að hann þurfi að hafa eitthvert andlit fyrir sér endalaust? Hættið svo þessu endemis tuði um hluti sem hafa hvorki merkingu né tilgang og snúið ykkur að merkilegri hlutum, eins og stækkun segulstöðvarinnar á Rauðasandi.