og þarmeð er honum skítsama hvað gerist.
Er gæti að reyndar þýtt eitthvað mildari stefnu í ljósi þess hvernig núverandi stefna hefur gengið ef ýmsar spár rætast (hann þarf minna að hugsa um sína hörðustu stuðningsmenn). Gæti t.d. þýtt að Rumsfeld o.fl. verði sparkað. Vér erum hinsvegar eigi bjartsýnir á þetta en vonum hið besta Íhugar að heimsækja fýluhornið
Mig grunar að ef Bush vinnur verði honum fljótlega sýnt banatilræði.
Þetta er búiðBrestur í óstöðvandi grát
Sýnist að Bush komi til með að vinna með 287 - sem er auðvitað bara sorglegt. Gaman samt að sjá skiptinguna í DC þar sem Kerry fékk 90% atkvæða ! Og þar er nú kannski helst fólkið sem hefur eitthvað vit á pólitík. Bush hefur semsagt ekki einu sinni fengið atkvæði þeirra repúblikana sem búa í DC og vinna þar fyrir flokkinn...
En til að horfa á björtu hliðina þá bíða okkur önnur fjögur ár af óborganlegum aulabröndurum.
Já, Jay Leno hugsar sér gott til glóðarinnar.
Ef Bush vinnur þá sé ég fram á að gefast upp á að fylgjast með heimsmálum. Það verður bara of dapurlegt. Ég hef ávallt talið að fíflið muni vinna, Repúblíkanaflokksmaskínan er einfaldlega of vel smurð og skipulögð. Það er sorgleg staðreynd því á síðustu áratugum var það Demókrataflokkurinn sem var flokkur fjöldans. Nú virðist Repúblíkanaflokkurinn vera að ná þeirri stöðu. Takið eftir að þeir náðu að halda meirihluta í senatinu og fulltrúadeild. Í gamla daga var demókrataflokkurinn með allt að tvær milljónum manna meiri meðlimi en R. flokkurinn. Nú er munurinn sáralítill.
Niðurstaðan hlýtur að vera sú að Demókrataflokkurinn þarf að endurskoða líf sitt í hnotskurn. Reyna að ná aftur og betur til einfalda bláflipafólksins sem er sérlega móttækilegt fyrir þjóðrembingi og ofsa hinna nýju og froðufellandi Repúblíkana. Það gengur ekki að þessi flokkur þróist út í að vera einkahreiður líberalista, það verður að ná fleira fólki í pottinn með einhverjum aðferðum.
Mér skilst að R. flokkurinn hafi endurskipulagt sig og er nú miðstýrðari og rekinn af festu meðan Demókrataflokkurinn sé staðnaður í einhvers konar laustengdu smákóngafyrirkomulagi þar sem verkalýðsfélög hafa mikil völd sem eru úr öllu hlutfalli við þau völd sem þau hafa raunverulega í dag, en verkalýðsfélagaaðild hefur minnkað mjög mikið á síðustu áratugum. D. flokkurinn þarf að laga þetta og ráðast á grasrótina, almenning og ná honum, enda hefur almenningur hingað til verið bakland flokksins og þessi flokkur sá eini sem gerir eitthvað fyrir hann. Ef það kostar það að menntalíberalistar þurfi að láta minna fyrir sér fara, enda ekki vinsælir meðal bláflipanna þar sem liberal er móðgunarorð, þá verður bara að hafa það.
Djísöss kræst. Þessir Demókratar misstu þrjá senatóra í viðbót og nokkra fulltrúa í neðri deild! Þeir þurfa virkilega að fara að hugsa sinn gang. Hvernig er hægt að tapa fyrir froðufellandi idíótum?
Hvernig er hægt að tapa fyrir froðufellandi idíótum?
Með því að vera eigi sjálfir froðufellandi idíótar ?
Er ekki staðreyndin sú að Demókratar hafa nálgast stórfyrirtækin meira, líkt og Repúblikanar voru, á meðan þeir R-lista menn öskra og æpa um sín rauðhálsamál, stuðning við byssur, bann við samkynhneigð, stríð ogkynþáttahatur? Almenningur getur ekki samsamað sig við flokks stórfyrirtækja, sem R-listinn reynir að fela að hann er í raun líka.
Mig grunar að ef Bush vinnur verði honum fljótlega sýnt banatilræði.
Ætli álög indíánahöfðingjans Tecumseh fari ekki að rætast:
http://www.rense.com/general37/zuu.htm
http://home.earthlink.net/~galileo5/article/presdeath.html
Líka hægt að gúgla þessum orðum:
Chief Tecumseh Curse
„Ghost Dance“ Mér hefur einmitt verið oftlega hugsað til þessa undanfarin misseri.
Hoppar um af kæti ÉG VISSI ÞAÐ, ÉG VISSI ÞAÐ, MWHAHAHAHAHA!
""We are convinced that President Bush has won re-election with at least 286 electoral votes," sagði Andrw Card starfsmannastjóri hvíta hússins í tilkinningu í sjónvarpi, og heilsaði svo að HERMANNA sið. Ég er hneikslaður og reiður!