Ég var að fá þá slæmu frétt að handrit og upptökur með verkum rússneska tónskáldsins Dimitri Shostakovich liggi undir skemmdum í Tallin í Eistlandi vegna skorts þarlendra á vilja til að halda utan um þau gersemi. Fréttinar eru hér:
http://www.ruv.is/main/view.jsp?branch=2574128&e342RecordID=91885&e342DataStoreID=2213589
og hér
http://www.ruv.is/main/view.jsp?branch=2574128&e342RecordID=91885&e342DataStoreID=2213589
Nú legg ég til að Baggalútía veiti þessum verkum pólitískt hæli. En eins og flestir vita þá var Shostakovich eitt merkasta tónskáld tuttugustu aldar og dansaði pólitískan línudans við Stalin og kumpána án þess að detta. Hugsa mætti sér almenna fjársöfnun meðal almennings, fyrirmenni í þjóðlífinu gætu verið með betl í Kringlunni og beðið um pening. Það er víst orðinn plagsiður.
Hafðu engar áhyggjur rakki minn. Þessi músík hlýtur að vera til á kasettu einhvers staðar.
Í mínum bíónördisma og besserwissi þá langar mig í þessu sambandi að minna á frábæra bíómynd um Shostakovich sem heitir "Testimony"(1988) en þar fer Ben Kinglsey með hlutverk meistarans og ætti hún að fást á öllum betri leigum.
En hvað hét aftur tónskáldið sem var svo hundtryggt Stalín að eftir að foringinn dó árið 1953, þá mun þetta tónskáld hafa geyspað golunni stuttu eftir. Hvað hét aftur tónskáldið?
Ertu að spyrja um Sergei Prokofiev, höfund Péturs og úlfsins og fleira góðs? Hann var að vísu ekki sauðtryggur Stalin, alls ekki, en lést sama dag og hann.
Heimasíðurnar
http://home.wanadoo.nl/ovar/sovcom.htm
og
http://home.wanadoo.nl/ovar/various/stalin.htm
gefa meiri fróðleik um þetta áhugaverða efni.
Já, einmitt Prokofiev var það, en ég man ekkert hvar ég heyrði þessa sögu, en mér skilst að hann hafi verið einskonar hirðtónskáld Stalíns.
Prokofiev var ekki í sérstökum metum hjá Stalin, né Stalin í sérstökum metum hjá honum. Vera kann að Stalin hafi haldið upp á tónlist hans við kvikmyndina Ivan grimmi. Það er hins vegar staðreynd að það voru til tónskáld sem gengu erinda yfirvalda og sömdu lög og texta sem ekki er hægt að líta á annað en lof og hól til handa Sovétríkjunum, rauða hernum og hinum alltumlykjandi og elskandi landsföður Stalin.
Ertu viss um að þessi Dimitri Shostakovich hafi verið til?
Fann hann ekki á:
http://www.classicalarchives.com/
Það ber að varast að taka mark á falsmiðlunum.
Samkvæmt falsmiðlunum mun hinsvegar Dmitri Shostakovich hafa verið til. En það hlýtur að vera lygi.
Ertu að spyrja um Sergei Prokofiev, höfund Péturs og úlfsins og fleira góðs? Hann var að vísu ekki sauðtryggur Stalin, alls ekki, en lést sama dag og hann.
Heimasíðurnar
http://home.wanadoo.nl/ovar/sovcom.htm
og
http://home.wanadoo.nl/ovar/various/stalin.htm
gefa meiri fróðleik um þetta áhugaverða efni.
Nú.. var það ekki Megas? Starir þegjandi út í loftið
Brennum verk Schostakovitsczxh!!!!!