Já, nú komumst við aftur á kortið í bridgeheiminum!
Já það eru ekki allar þjóðir sem geta státað af því að eiga eitt af sextán bestu bridgeliðum í heiminum! En ætli það sé tilviljun að í gær eftir stórsigur Íslands á liði Letta, að þá lét ríkisstjórn Lettlands af völdum?
Ó hvílík hamimgja!
Stekkur hæð sína
... En ætli það sé tilviljun að í gær eftir stórsigur Íslands á liði Letta, að þá lét ríkisstjórn Lettlands af völdum?
Hahaha, það skyldi þó ekki vera!
Þjóðin ætti heldur að beina kröftum sínum að því að ná árangri í ólsen ólsen. Þar er miklu göfugra spil á ferðinni.
Og þar ættum við vísan sigur í hvert skipti. Þetta yrði svona eins og Kenya og maraþonhlaup.
-
Ég er svosem til í eins og einn Lúdó.
En næst má ég ráða hvað við spilum. Jæja, kannski ekki ráða en allavegana taka þátt í að velja. Ok, kannski ekki taka þátt en allavegana segja 'nei' ef það er alveg hörmulegt. Allt í lagi, ég skal ekki segja 'nei' en ég allavegana má fyllast viðbjóð og sleppa því að klappa fyrir hálfvitanum... Bush... já, því fífli.
-
Einu sinni hlustaði ég á skákmeistara mæra gildi íþróttar sinnar. Hann líkti henni jafnvel við list. Ég sagði að þetta væri nú bara spil, eins og Lúdó. Ég átti fótum mínum fjör að launa.
Hef einnig gert það Hakuchi, og trúi því stundun varla að ég sé á lífi!
Hvurnig dirfist þér að líkja jafn göfugri íþrótt og skák við teningaspil? Rífur hár sitt
Jóakim hóf hins vegar umræðuna hér með því að tala um brids sem er sínu göfgri íþrótt en skákin. Ókey kannski ekki göfugri en fjölbreittari, skemmtilegri og meira þroskandi.
Verst með leikinn við kínverjana, við eigum ekki að þurfa að beita fyrir okkur höfðatölureglunni...
Verst með leikinn við kínverjana, við eigum ekki að þurfa að beita fyrir okkur höfðatölureglunni...
Jú, einmitt þar. Það er aldrei jafn gaman að beita þeirri reglu eins og einmitt gegn Kínverjum Ljómar upp
Það væri gaman ef Jóakim kæmi með Félagsrit, þar sem farið væri í saumana á spilum áhugaverðra handa á þessu móti, jafnvel segja frá sögnum og hvar menn notuðu þvinganir, svíningar eða köll og hvar andstæðingurinn var gabbaður sem mest, hugsa að Jóakim sé nokkuð vel að sér í þessu skemmtilega og göfuga spili...