Eins og venjulega ber friðargæsluliða (í þessu tilfelli mér - ligga ligga lái) að tilkynna að hér skulu menn hegða sér vel og allt sem getur flokkast undir níð, meiðyrði, leiðindi eða hvatning til heimilisstarfa verður hiklaust þurkað út. Ef einhver tekur eftir færslum sem þykja ósæmilegar þá bið ég um að mér verði send tilkynning þess efnis hið snarasta svo ég geti við fyrsta hentugleika sullað ómenguðu asentoni á færsluna. Njótið vel og lengi![/s]
Ég þori ekki einu sinni að leggja inn þetta innlegg. Horfir smeykur í átt að Ívari
-
Gættu samt meðalhófs væni minn. Fátt er sorglegra en spjallsvæðagæsluliðar á valdatrippi.
Steitir görn
Gættu samt meðalhófs væni minn. Fátt er sorglegra en spjallsvæðagæsluliðar á valdatrippi.
Rétt. Ekki ofmetnast Ívar.
Gættu samt meðalhófs væni minn. Fátt er sorglegra en spjallsvæðagæsluliðar á valdatrippi.
Það ekki á dagskrá að fara í valdsmannsleik. Hins vegar læt ég í það skína að ef einhver er að steita görn... ég meina með eitthvað ósæmilegt hjal þá má sá hinn sami eiga von á því að það fækki eitthvað í baunasúpunni hjá honum. En ég mun ekki fara í þjóðhreinsanir nema þess verði krafist skriflega frá ritstjórn.
Skrifa leiðindi og níð um nafngreinda Baggalúta í laumudagbókina, stofnar félag áhugafólks um vönduð heimilisstörf. Felur sig og bíður eftir Síverten
Skrifa leiðindi og níð um nafngreinda Baggalúta í laumudagbókina, stofnar félag áhugafólks um vönduð heimilisstörf. Felur sig og bíður eftir Síverten
Leitar að feminista og bölvar alveg herfilega. Hvað var þetta með feministaklúbbinn... átti ekki að leggja hann niður... bíður átekta
Haga sér vel, vanda mál sitt??
Svei 'attan!Blótar herfilega og rífur hár sitt og skegg
Haga sér vel, vanda mál sitt?
Svei 'attan!Blótar herfilega og rífur hár sitt og skegg
Skv. Geir og Grana í Spaugstofunni þá er það að vera mjög orðljótur að segja Svei'attan...klórar sér í höfðinu og dæsir
nei, enda er hann meira ætlaður til upplýsinga og ábendinga.
Hún er komin yfir grindverkið! Sleppið hundunum!
Hvar er Muss S. Sein og hans kokteilsvín þegar þeirra er þörf...