Gott kvöld, grey ég var að ranka úr rotinu eftir höfuðhöggið
fyrir nokkrum kvöldum.
Ég vill byrja á að þakka stuðninginn og þið eruð allir ráðnir (þó mig vanti
ennþá barnapíu, skúringakall, einhvern til að fylla á bensínið utanfrá og
fótabað)
Dagsetning er óákveðin en ég hef ákveðið að byggja skotpall í Þrengslunum.
Pípan.
Ég get vart beðið eftir að við förum á stað Stekkur hæð sína sem er ekki alveg nóg til að komast á sporbaug
Væri ekki við hæfi að reikna framkvæmdirnar búnar og allt tilbúið fyrir skot-
1. desember (fullveldisdaginn)
Vjer teljum bráðnauðsynlegt að halda skotdegi og staðsetningu leyndum því það gerir óvinum vorum erfiðara um vik að hindra geimskotið með skemmdarverkum og undirróðursstarfsemi.
Þetta er allt að koma, nú er ég búinn að hanna geimkanónu og kvarkahríðgeislabyssu sem ég hyggst staðsetja aftantil. Nokkrar geislabyssur og plasmarifflar verða líka til staðar en ég mun geyma þá í káetu minni, ég treysti ykkur ekki fyrir slíkum vopnum nema í algerri neyð, þar sem þið verðið fullir alla leiðina.
Kjarnorkusprengjur fylgja með, ásamt orkusviðsvíddarkjarnakvarkaofni sem sjá um að hlaða kvarkahriðgeislabyssuna. Kjarnaofninn neyðist ég til að setja í eldhúsið, sem er ágætt því að geislunin frá honum ætti líka að virka ágætlega sem örbylgjuofn, það eina sem þarf að varast er að maturinn stökkbreytist ekki og fari að ráðast á okkur og reyna að drepa, þess vegna verður neyðargeislabyssa í matsalnum.
Ég er búinn að testa margar gerðir af útblástursefnum til notkunar í hreyflum væntanlegs farartækis og hef komist að þeirri niðurstöðu að jónahreyflar með kóbaltgasblöndu virkar best til að ná fram stöðugri hröðun fyrir utan andrúmsloft jarðar. Þess má geta að ef þið vitið einhverja leið til þess að stöðva slíka hröðun þá megið þið gjarnan hafa samband við mig.....
Vjer mælum með auka-jónahreyflum framan á geimskipinu til að stöðva hröðunina.
Erfitt gæti reynst fyrir mig að koma hreyflunum fyrir þar sem farartækið er á ansi hreint mikilli ferð orðið. Mér reiknast sem að ég sé kominn á 0.5 % ljóshraða og ekki er langt þangað til kolefnisbindingarnar í hreyfilsprufunarhringgöngunum fara að gefa sig...
Ég mun líklega hljóta frama sem hin fyrsta mennska plasmabyssukúla ef mér tekst ekki einhvern veginn að brjóta þessa illu hringrás hröðunar.
Næst mun ég líklega prufa þetta með fjarstýribúnaði.
eigum við að skrifa minningargrein núna eða er þetta kannski fullsnemt ?
Erfitt gæti reynst fyrir mig að koma hreyflunum fyrir þar sem farartækið er á ansi hreint mikilli ferð orðið. Mér reiknast sem að ég sé kominn á 0.5 % ljóshraða og ekki er langt þangað til kolefnisbindingarnar í hreyfilsprufunarhringgöngunum fara að gefa sig...
Ég mun líklega hljóta frama sem hin fyrsta mennska plasmabyssukúla ef mér tekst ekki einhvern veginn að brjóta þessa illu hringrás hröðunar.
Næst mun ég líklega prufa þetta með fjarstýribúnaði.
Ég mæli með því að þú endurtakir útreikningana þína. Þar sem þú ert í hringgöngum þá grunar mig að Kóbaltgasið úr jónahreyflinum skelli í raun framan á farartæki þínu með jafn miklu afli og það ýtir þér áfram, þessvegna ættir þú að vera hreyfingarlaus í hringgöngunum og einungis spurning um að bíða þess að Kóbaltgasið sé uppurið og ætti þér þá að vera óhætt að stíga út.

Mig grunar að Glúmur sé farinn að ryðga í eðlisfræðinni - samkvæt mínum útreikningum er hröðunin það mikil að það er aðeins hægt að hljóta frama sem hin fyrsta mennska pönnukaka...
HUH óttalegt bull er þetta. Það vita allir heilvita menn að geimferðir eru ekki mögulegar. Fáið ykkur heldur vinnu en að hanga svona fyrir framan upplýsingaapparatið og skrifa svona bull og vitleysu.
HUH óttalegt bull er þetta. Það vita allir heilvita menn að geimferðir eru ekki mögulegar. Fáið ykkur heldur vinnu en að hanga svona fyrir framan upplýsingaapparatið og skrifa svona bull og vitleysu.
þér eruð flón herra Andersen!
satt er það að Danir hafa aldrei stigið fæti á tunglið.
en ég, Írsk-Íslensk-Þýzk-Indverskur maður hef nokkuð oft farið til tunglsins og mars í sumarhýbíli fjölskyldu minnar...
eða var það í kjós...? Starir þegjandi út í loftið
jæja... sveppatímabilið barasta hafið.. hehehe... Stekkur upp, ljómar hæð sína og dansar við tómið í algeymi úthverfrar íhugunar...
Ég held minn kæri Gibson að þú ættir að fara með sveppina þína á Snæfellsnes til Karnabæjar liðsins og bíða eftir að sjá ÚFÓ-A og framandi verur. Þú kæmist að því þegar búið væri úr grænmetispokanum þínum að ég hef á réttu að standa.
nei minn kæri Andrésönd, þetta er alltsaman mikki, en FLÓN!! hafið þér nokkuð séð hundinn minn hérna einhaerstaðar? hann er depill og heitir Spotti????
Krakkar mínir, róið ykkur niður.
Ég er í miðjum útreikningum.
Gæti einhver sagt mér hver útkoman ú 6 sinnum 4 er?
Þetta er mikilvægur þáttur svo að allt verði í orden við geimskot.
Og gerið mér greiða, ekki drepast úr tilhlökkun.
Huhu. Ljómar upp