Í bókinnni „Spádómar Heskalíesar“ segir á bls. 361, íslensku þýðingunni m.a. þetta: „... í landi alsnægtar og auðaæfa ríkir hinn illi leiðtogi sem farið hefur með eldi og eyðileggingu um lönd Allah. Um fyrsta fulla tungl vetrar munu stórtíðindi verða en þá ber svo við að leiðtogi hinna kúguðu í fyrirheitna landinu deyr á meðan skugginn gleypir tunglið. Þá munu herir upp rísa, plágur geysa og eigi mun af látið fyrr en lífi á jörðinni er öllu tortímt.“
Best að skríða undir sæng.

Ætlaði að gúggla um þetta. Hvernig er nafn spámannsins á engilsaxnesku?
Sjokkerandi. Miðað við http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1109199
Varstu að búa þetta til sjálfur Haraldur?
Það vanta ekki stuðlana og höfuðstafina. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Moi!?
Já og þá meina ég auðvitað spádóminn. Leggst á bæn
Við þurfum nú kannski að passa okkur Haraldur að vera ekki að fjalla mikið um heimsendaspádóma. Það eru svo mörg börn að flækjast hérna þessa dagana. En talandi um spádóma, sagði ekki Nostradamus að frá eyjunni í norðri kæmi mikill friðarleiðtogi? Þá hljótum við að vera hólpnir. Spurningin er bara: Var hann að meina Ólaf Ragnar eða Ástþór?
Ástþór heldur allavega að það sé hann.
Já það leynir sér ekki. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Nostri talaði líka um að þorpsfíflið yrði kóngur.
Ég giska á Halldór nokkurn frá Vopnafirði Brestur í óstöðvandi hlátur