Kannast e-r við orðið "strjálskita" yfir hægðatregðu?
Helvíti ertu frumlegur. Sæmi ég þig hérmeð orðu yfir frumlegasta nýliðann. Til hamingju.
Réttir fram hendina að því er virðist af algjöru áhugaleysi, hryglir í lungum, hóstar, dregur hendina til baka, sofnar
Þakka þér innilega Leibbi minn. Vinalegur bjúrókrat! Það er nú ekki algengt. Þú ert það sem kallað var bjútíkrat í minni bernsku.
Það er hægt að nota orðið gerast í staðin fyrir ske
t.d. Gerjungur. Mikil gerving
Hvernig eiga fjósamenn að tilkynna bóndanum með undrun og lotningu að það sé kýr að beiða ef "Vábeiða" verður bannað?
Var nokkur að tala um að banna vábeiðuna?
Júlía var nú held ég bara að leggja inn orð í safnið.
Oss finnst vanta að merking orðanna komi fram (sé höfundum innleggjanna kunnugt um hana). Jafnframt bætum vér hér við orðinu mélkisulegur er þýða mun fölur, vesældarlegur e.þ.h. Sáum vér orð þetta fyrst í textanum við einhverja bíómynd í sjónvarpinu fyrir löngu og neyddumst til að fletta upp í orðabók til að staðfesta það sem oss grunaði.