Söngvari þjóðarinnar. Var bara orðið tímabært að einhver léti þetta fjúka hérna.
Villi Vill er nú alltaf í miklu uppáhaldi á mínum bæ. Ekki það að ég sé neitt að draga úr ágæti Hauks.
-
Enda ekki hægt að níða hvorugan þeirra. Bestir með sínum hætti. Fannst mér "bíddu pabbi" alltaf svo fallegt lag.
Brestur í óstöðvandi grát
Hef ég áreiðanlegar heimildir fyrir því að Smekkleysa sé að fara að gefa út Instrumental Hauk Morthens plötu, enda átti höfðinginn að verða 80ræður á ári þessu.
♪♪♪ ... jafnvel lítill jeppakoss. ♪♪♪
Snilld, þvílík gargandi snilld.
Bjössi á mjólkurbílnum.
Stekkur hæð sína
"...mig vantar kaupakonó
og kannski á ég vonó
í Mývatnsveitó.."
Og síðan er í einum texta þeirra laga sem Haukur söng einhver flottasta viðreynslislína allra tíma:
"...ef þú kemur heim með mér,
þá heila drápu kveð ég þér..."
Mér finnst jólaplatan best.
Sérnámskeid í medleyum og módúlasjónum.
Það er sérkennilegt að það hafi enginn söngvari komið fram síðustu ár með sömu flauelsrödd og Haukur. Bjarni Ara er svo sem ágætur en engan veginn eins lungamjúkur og Haukur. Rósinkransinn tekur þetta meira á kraftinum og lungunum. Um Geir Ólafsson þarf ekki að hafa mörg orð, hann gæti ekki sungið þótt draumurinn um heimsfrægð væri að veði.
Já en í staðinn fengum við Geir Ólafs og Bjarna Ara... slæm skipti það!
Haukur heitinn Morthens var líka séntilmaður fram í fingurgóma.