Jú en Hey Jude kemur líka til greina og Let It Be og Here Come The Sun.
Mér finnst lögin Michelle og Girl ansi hreint mögnuð. Vil jafnvel ganga svo langt að kalla þau uppáhaldsbítlalögin mín. Þau fá samt harða samkeppni frá lögum eins og A Day In The Life, Eleanor Rigby, Carry That Weight, In My Life, And I Love Her, Good Day Sunshine, If i Fell, og mörgum fleiri. Svo er coverið þeirra af ´till There Was You einkar fagurt.
Mér finnst eiginlega öll lögin með Bítlunum flottust nema þau sem eru það ekki.
Mér finnst Way Dont WE dOIT iN tHE rOAD.
Merkilegur nokk árangur, þér hefur tekist að skrifa eitthvað sem jafnvel bauv skilur ekki, sem er nú bara stórmerkilegt. hellir viskíi í glas, klakar í ótiltekinni röð Skál! réttir apanum banana Hérna, þú mátt fá bananann sem ég tók af þér í morgun.
Bítlalög eru best, samkvæmt skilgreiningu. Allur nánari dilkadráttur er merkingarlaus rökvilla.
Lómagnúpur!!!!
Það var mikið að þú sagðir eitthvað um málið.
Hvaða hártoganir eru þetta, ég lét þig hafa bananann aftur, dugir það ef til vill ekki til?
Að ætla sér að velja eitthvert eitt Bítlalag og segja að það sé betra en öll hin er líkt og að sitja með fulla skál af perlum og eiga að velja þá fegurstu.
Lög Bítlanna voru flest frábær og það er nánast útilokað að reyna að draga þau í dilka og segja til um hvert þeirra sé best, næst best og svo framvegis.
Því segi ég eins og sumir hér að framan. Bítlalögin eru öll best.
Hvernig stendur á því að John Lennon hefur ekki komið í skyggnilýsingar í þáttunum Lífsaugað. Ég er viss um að margir vildu bera fram spurningar til hans. Þetta er alltaf bara eitthvað lið tengt gestum þáttanna.
Ætli miðillinn kunni ensku ? Verður hugsað til Heimsljóss
Bítlarnir eru hommapopp og ekkert annað...
Loksins almennileg rökfræði.
Paul McCartney er h0mmapopp en löginn eru helvíti góð. Blackbird er einkar hugljúft.
1.She Loves you
2.Love me do
3.Revolution
4.Hey Jude
5.Come Together
6.Let It Be
7.While My Guitar Gentl Weeps
8.Blackbird
9. I Have Just See A Face
10.Julia
11.Mother Natures Son
12.Love You To
13.Martha Me Deer
14.Oh!Darling
15.The Night Before
Þetta er mitt mat
Ágætis listi alveg hreint. Þetta er sígild spurning og oft rædd í mínum vinahópi, enda Bítlaáhugamenn margir með eindæmum. Síðasta uppáhaldslagiðmittmeðBítlunum er Taxman sem er á Revolver. Fyrri lög voru til dæmis A Day in a Life og Across the Universe.
Og eins og bauv segir: það er mitt mat.