Sean Connery vann við að pússa líkkistur áður en hann sló í gegn sem leikari.
Hef heyrt að Connery þessi sé fæddur í Osló
Bæði www.imdb.com og
http://en.wikipedia.org/wiki/Sean_Connery segja hann fæddan í Edinborg.
Þetta er eitthvað sem mér var sagt. Sel það ekki dýrara.
Ekki segja svona hryllingssögur kæri Hildisþorsti. Svona upplýsingar myndu kalla á að maður þyrfti að endurskoða líf sitt eins og það leggur sig.
Ég skal aldrei segja svona aftur. Fær 15 vandarhögg
poppmaís þarf að innihalda 13,5-14% vatn
mig langar að fræðast um urðamána
Sean Connery vann við að pússa líkkistur áður en hann sló í gegn sem leikari.
Hef heyrt að Connery þessi sé fæddur í Osló
Ef það er ekki Snorri Sturluson, Ingólfur Arnarson, Leifur Heppni, Eiríkur Rauði, Björk, Íslenski hesturinn, Íslenska síldin, Íslensku Handritin, Vatnajökull, Keikó,Tina Turner, Kristján Jóhannsson, ég, þú eða allir hinir. Að þá eru þeir að reyna að eigna sér Sean Connery LÍKA!
Það er hins vegar undarlegur andskoti að þeir hafa aldrei reynt að eigna sér Geir H. Haarde.
Urðarmáni eða Hrævareldur kemur við sögu í bókinni "Sjö kraftmiklar kristalskúlur" nánar tiltekið kemur slíkt í gegnum arin Fimbuls Fislétta. Annars þyrfti að kom hér gagnlegri fróðleikur áður en lengra er haldið...
Þessi fróðleikur hérna á þessum þræði er nokkuð tilgangasmikill.
Vissuð þið að það er ekki blý í blýanti heldur grafíti sem er kolefnihttp://www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=1286
það eru nákvæmlega sjö bókstafir í kolefni
næst vil ég fá eitthvað tilgangslaust um óvenjulegan mat
Þeir Rugby menn sem lifðu af fræga Flugslysið í Andesfjöllum Október 1972, borðuðu samtals 15 manns af 29.
Það er alveg tilgangslaust að vita að brúarsérfræðingar Rómarveldis notuðu gæsaegg við hönnun á flestum smærri brúm sem þeir byggðu.
-
Svo eru merkilegt nokk, egg algengasta fæðutegundin í áströlskum pizzum. Sjálfur borðaði ég "Eggjapizzu" einu sinni á Ítalíu og þá var rauðan í miðjunni og litlar rækjur syndandi í hvítunni...