Nú er svo spurning hvort það hafi ekki söluhvetjandi áhrif að sleppa útgáfu 4.00 alfarið úr, og fara beint í útgáfu 5.00?
Getum við ekki haft 5.00 útgáfuna svokallaða "uppfærslu" til að leiðrétta galla í 4.00 sem voru innsettar viljandi. Þarna er gróðatækifæri strákar
Þetta er spurningin um að gera þetta vel strax svo það þurfi ekki að gefa út endalausa "service pakka". Þarf líka að vera vel vel varið fyrir hökkurum, þannig að hægt sé að losna við vírusa eins og Bush og forstjóra olíufélaganna.
Meðfæddur fullkominn skilningur á rafmagni, þyngdarafli og hjóði væri gott veganesti.
Gott væri að blotna ekki í fæturna þótt fljótandi efni komist í skó og/eða sokka.
Gott væri að þurfa ekki að eyða svona miklum tíma á salernum þegar setið er við drykkju
Það væri frábært ef maður fengi alltaf fullan svefn óháð hversu lengi maður sefur.
Snjór þarf ekki að koma við sögu í næstu útgáfu, það er mín skoðun allavega
Snjór þarf ekki að koma við sögu í næstu útgáfu, það er mín skoðun allavega
En ef hann væri öðruvísi á litinn og hlýrri?
Það væri allt í lagi að hafa hann eins og hann er ef hann væri stefnumiðaður þegar hann fellur til jarðar. Þannig að hann lendi ekki á götum og gangstéttum, eða þar sem ami er af. Til dæmis væri fínt að Grindavík fennti í kaf árlega.
Best væri ef hann félli alltaf lóðrétt. Til að svo gæti orðið, þyrfti annað hvort að útiloka vind eða snjókorn yrðu um eitt kíló að þyngd. Ég er sáttari við hið fyrra.
Fínt væri að hafa alltaf meðvind í þá átt sem maður hjólar samt.
Best væri ef hann félli alltaf lóðrétt. Til að svo gæti orðið, þyrfti annað hvort að útiloka vind eða snjókorn yrðu um eitt kíló að þyngd. Ég er sáttari við hið fyrra.
Við erum náttúrulega að tala um að hanna nýja útgáfu af alheiminum, þannig að þau lögmál sem gilda um þyngd núna þurfa ekki að gilda í næstu útgáfu. Það er því alsendis óvíst að þyngd hans þyrfti að aukast eða stöðugt logn.
Ef ekki, þá væri hugsanlegt að gera snjókornin straumlínulagaðri.
Sko... Afsakið ef ég reyfa hér eitthvað sem þegar hefur verið... eh, reyfað, en ég hef verið... ummmm Starir þegjandi út í loftið fjarverandi... Hvaða „tala“ pí er, er væntanlega afstætt. Spurning um að velja bara talnakerfi þar sem gildi pís er bara fallega slétt tala, ekki satt?
leysir vísindalegan vind

Þá verðum við líklega að afnema hringformið og alfarið taka um ferninginn
Talnakerfi með pi sem grunn þannig að gildi þess sé 10 ? Ljómar upp
Heldur fyrir augun Rólegur á ljóminu Vlad