Þetta er skemmtileg pæling. Í næstu útgáfu við ég hafa meira afgerandi bragð af kjúklingi og kotasælu.
Ananas.
Hver veit hvernig ananas er í fleirtölu?
Ananasar Starir þegjandi út í loftið
Það mætti gera gosdrykknum Póló hærra undir höfði í næsta sinn.
* Sama fjarlægð verði milli allra hluta.
Hljómar ekki vel, Ég vil hafa ákavítið næst mér en ímsa aðra víðs fjarri.
lítil svarthol til heimilisnota í staðinn fyrir ruslafötur
Góð hugsun.
۞ Æskilegt væri að tíminn væri ekki sama einstefnu vídd og hann er. Tíminn mætti líða jafnt aftur á bak og áfram, jafnvel út á hlið.
۞ Hámarkshraði verði óháður ljóshraða.
۞ Mindun ormganga væri einfölduð til muna.
* Jafn auðvelt sé að ferðast í tíma eins og rúmi, þ.e. tímaferðalög verði eins og stutt ferðalög í rúmi að því leyti að þau krefjist eigi sérstaks tækjabúnaðar.
۞ Æskilegt væri að tíminn væri ekki sama einstefnu vídd og hann er. Tíminn mætti líða jafnt aftur á bak og áfram, jafnvel út á hlið.
Hvað eru þið að bulla þetta er svona nú þegar.hristir höfuðið og fórnar höndum til himins
Mér líst vel á þetta með lítil svarthol til heimilisnota.
Og enga þynnku.
Og svo mætti alveg hafa sama kerfi og í Matrix að það væri bara hlaðið í mann forriti eða skrá og þá kynni maður bara sisona Kung fu eða að fljúga þyrlu.
Og engan Björn Bjarnason!!!
Næsti heimur á líka að vera laus við Framsóknarerfðasjúkdóminn.
Ennfremur má hanna mannfólkið þannig að enginn hefur áhuga á Britney spearsískri tónlist og hipphoppi.
Í stað þess að svara innleggi voru hér virðist friðargæsluliðinn hér óvart hafa breytt því í eftirfarandi:
"Góður punktur"
(nema verið sé að búa til Vladuchi, sbr. Júkuchi er hér varð til fyrir nokkrum vikum).
Upphaflega sögðum vér u.þ.b. þetta:
Öruggara væri að tryggja að BS og hipphopp væru eðlisfræðilega útilokuð, þ.e. brot á náttúrulögmálunum.
Hvað er heimurinn án Framsóknarflokksins spyr ég bara? Á 17. öld var Framsóknarflokkurinn ekki til. Var mikið fjör þá? Nei, ekkert nema fásinnið og mannfellir af hallærum. Á 18. öld var framsóknarflokkurinn heldur ekki til. Enn meira hallæri, móðuharðindi og djöfuldómur. Á 19. öld var Framsóknarflokkurinn ekki heldur til. Fólk flýr umvörpum til Ameríku eftir grasleysissumur, kulda og hafís. Á 20. öldinni verður Framsóknarflokkurinn til. Mesta framfaraskeið mannkyns. Tækniöld. Bíla og flugvélavæðing. Sími, rafmagn, hiti. Almenn velsæld. Menntun meiri en áður þekkist. Heilsufar batnar. Berklum og barnadauða svo til útrýmt. Ný lyf, nýjar lækningar. Farið úr torfkofum í steypt einbýlishús. Tölvuöld gengur í garð.
Hvað er heimur án hipphopps, spyr ég á móti? Ég hef lúmskt dálæti á þeirri tegund tónlistar. Vilja hæstvirtur forseti vor og ástkær konungur láta koma mér fyrir kattarnef? Lætur útbúa 'örugga álmu' í höllinni, birgir sig upp af matvælum og hipphopp diskum. Festir upp plagöt með myndum af 50 Cent og Snoop Dog til að ögra konunginum og spilar 'High All the Time á hæsta styrk.
Hvað er heimurinn án Framsóknarflokksins spyr ég bara? Á 17. öld var Framsóknarflokkurinn ekki til. Var mikið fjör þá? Nei, ekkert nema fásinnið og mannfellir af hallærum. Á 18. öld var framsóknarflokkurinn heldur ekki til. Enn meira hallæri, móðuharðindi og djöfuldómur. Á 19. öld var Framsóknarflokkurinn ekki heldur til. Fólk flýr umvörpum til Ameríku eftir grasleysissumur, kulda og hafís. Á 20. öldinni verður Framsóknarflokkurinn til. Mesta framfaraskeið mannkyns. Tækniöld. Bíla og flugvélavæðing. Sími, rafmagn, hiti. Almenn velsæld. Menntun meiri en áður þekkist. Heilsufar batnar. Berklum og barnadauða svo til útrýmt. Ný lyf, nýjar lækningar. Farið úr torfkofum í steypt einbýlishús. Tölvuöld gengur í garð.
Já voffi minn. Allt Guðna að þakka.
Allar mannverur verða útbúnar hörðum diski sem má fjarlægja við andlát. Síðan er niðurhalað af honum í nýjan klón af einstaklingnum. Þannig er hægt að lifa að eilífu, eða svo lengi sem nenna er til staðar.
Maxtor?
Ó, ég skil