Sóknarprestur! Sóknarbörn! Prestaköll! A-menn!
Hlær roknahlátri svo frussast yfir viðstadda
Ekki heyrist hljóð í salnum nema lágstemmt engisprettuhljóð.
Horfir á Þarfagreini með pókerfeis
Vá, pókerfés lýsir einmitt ágætlega svip mínum á meðan ég sat yfir umræddum þætti í gær. Merkileg tilviljun.
Getur einhver sagt að Örn Árnason hafi ekki verið góður í að herma eftir David Attenborough síðasta laugardagskvöld? Og að þáttur Sollu „stirðu“ og Kidda „glæps“ hafi bara verið gamall húmor?
5 stjörnur frá mér.
Ég leik David Attenborough betur en Örn, en þátturinn um Sollu og Kidda vinnur upp annars glataðan húmor og fær þátturinn í heild tvær og hálfa stjörnu frá mér.
Sá byrjunina á þessum þætti. Örn er alveg jafn 'góður' Attenborough og hann var þegar þeir gerðu sama þátt fyrir 11-12 árum.
[quote="Þarfagreinir"]Sóknarprestur! Sóknarbörn! Prestaköll! A-menn!
hmm minnir að hinn heiðvirði Doktor hafi heyrt þetta á
hljómskífu sem gekk undir nafninu SAMA og ÞEGIÐ.
tja hmm
Getur einhver sagt að Örn Árnason hafi ekki verið góður í að herma eftir David Attenborough síðasta laugardagskvöld? Og að þáttur Sollu „stirðu“ og Kidda „glæps“ hafi bara verið gamall húmor?
5 stjörnur frá mér.
Algjörlega sammála Hildisþorsti, Attenborough var fínn en Solla og Kiddi óborganleg.
Áfram spaugstofan.
Reynið þið að koma með eitthvað skemmtilegra en spaugstofan, ÁFRAM SPAUGSTOFAN!
Ég verð bara að tjá mig um það að mér finnst Spaugstofan ágætis dægradvöl og á það til að skellihlæja yfir þessu.. sérstaklega þó mistökunum í endann! Þau eru snilld.
Nú er ég búin.
Takk fyrir mig.