Má bjóða dömunni að senda inn langan lista af svörum, til að spara lyklaborðið mitt? En ég gæti bent þér á að þú ert á nokkrum villigötum fröken Frelsishetja.
Má bjóða dömunni að senda inn langan lista af svörum, til að spara lyklaborðið mitt? En ég gæti bent þér á að þú ert á nokkrum villigötum fröken Frelsishetja.
Sömuleiðis með því að halda að ég sé stelpa!
Eigum við þá bara ekki að útiloka Blairwitch project...
Er hægt að fiska fleiri atriði úr þessari mynd?
Ég gæti sett inn fleiri vísbendingar fljótlega ef mér líst illa á framvinduna, ég gef þessu fram að hádegi í þeirri mynd sem það er núna.
Jæja þá verð ég bara að þrengja listann.
Er þetta horror filma og er hún yngri en 10 ára?
Eftir að hafa loksins fundið mynd þá er atriðið kemur úr tel ég mig knúinn til að lýsa því uppá nýtt, þar sem allar staðreyndir málsins komu ekki fram í upphaflegri lýsingu (sem kemur til af því að ég hafði ekki séð myndina síðan hún kom upphaflega út).
Kona ekur bíl í myrkri og sofandi karlmaður situr við hliðina á henni, hún sér ljós í fjarska, nálgast það og þegar hún ekur framúr ljósgjafanum sér hún að um er að ræða ungan pilt á hjóli, með spil fest við grindina, sem smella í teinana (tvö spil). Konunni er ekki svo mjög brugðið við þetta, heldur ekur áfram, en er þó mjög hugsi. Eftir skamman akstur sér hún aftur líkt ljós í fjarska en þegar hún nálgast það sést að hér er hjólið að stefna í áttina að henni og á því situr gamall maður með mikið hvítt hár konunni er nú sýnilega mjög brugðið og reynir að vekja manninn sem situr við hliðina á henni, en hættir við.
Til að svara nú Hetjunni, þá er um að ræða mynd sem er yngri en 10 ára og augljóslega eldri en 4 ára. Það má flokka hana sem horror mynd.
Þetta hljómar nú eins og Tales from the crypt eða Twilight zone.
Það mun vera rangt hjá þér. Farðu nú að gera heimavinnuna þína.
Þetta gengur eitthvað erfiðlega. Ég bæti þá inn vísbendingu. Ein persónan í sögunni er að einhverju leiti byggð á áðurumtöluðum Stephen King.
Ekki er þetta myndin með Kathy Bates? Þar sem hún tekur rithöfund í gíslingu? Misery eða hvað hún nú hét?
Nei ekki er þetta Misery, því Stefán K. skrifaði víst smásögu þá er sú mynd er byggð á. Of oft nefndur Stefán kom í engu nálægt gerð þessarar myndar.
Er þetta beint eða óbeint byggt á einhverju eftir Stephen King? Þetta er ekki Cat´s Eye eða kannski bara Pet Semitary?
Nei ég veit ekki til þess að sagan sjálf sé byggð á neinu leiti á einhverju sem Stefán hefur skrifað, en hann hefur nú skrifað ansi mikið svo það kæmi ekki á óvart ef einhverstaðar mætti finna eitthvað líkt með þessari mynd og sögunum hans Stefáns.
Ágiskanir þínar eru því miður rangar Tinni.
Einmitt og hann leikstýrir og leikir þrjú af sjö aðalhlutverkum sjálfur. Fyrir utan að sjá um förðun og eldamennsku.