Rétt, þetta er úr þessari fyrstu, gaurinn sem var dónalegur við börnin (dauðasök í Holly) var seinna étinn af T-rex þegar hann sat á kamrinum minnir mig
Jæja, áfram með smjörið.
Drengur er við það skaða gæludýr annars drengs.
Sá seinni kemur hlaupandi að til að reyna að stoppa hinn fyrri.
Sá fyrri tekur upp spýtu og slær til þess seinni.
Spýtan lendir í andliti systur þess með spýtuna.
Drengur með spýtu : „ Sjáðu hvað þú lést mig gera! “
-
Obbosí... mikið rétt. Var þetta svona auðvelt já. Jæja, þú átt leik Hr. Órækja.
-
Tveir menn, annar svartur og hinn hvítur, standa andspænis hvor öðrum vopnaðir byssum og er þeim augljóslega ekki vel til vina. Þeir nálgast hvorn annann á ógnandi hátt, mundandi byssurnar, en fara svo framhjá hvor öðrum án þess að hleypa af skoti og vísa þá frá hvor öðrum. Engu skoti er hleypt af fyrr en sá svarti stígur á fjöl sem brakar í.
Hver er myndin?
Fyrsta sem mér dettur í hug er myndin See no evil, hear no evil.
Er það rétt ágiskun hjá mér ?
-
Jæja, látum þetta ganga. Hér er næsta atriði.
Tveir menn liggja saman í rúmi.
Annar segir : Í Evrópu telst það ekki óvenjulegt að þrír eða fjórir menn deili rúmi saman.
Hinn svarar : Þess vegna er ég stoltur af að vera ameríkani.
Sá fyrri bætir við : Meðan ég man, mér finnst gott að sofa nakinn.
-
Já auðvitað, þetta er úr myndinni Reiðistjórnun (e. Anger management).
Kona ekur bíl sínum í mikilli geðshræringu, í myrkri. Skyndilega kemur hún upp að dreng á hjóli sem fest hefur spil við gjörðina svo að skemmtilegt hljóð myndast þegar hjólað er. Konan skelfist við þetta enn meira og stígur bensínið í botn.
Hver er myndin?
Nei og raunar er hvorugur aðilinn sem upp er talinn blakkur á hörund.
Ég er nú ekki að koma þessu fyrir mig. Svo ég held bara áfram að þreifa.
Er myndin eldri en frá árinu 2000 ?
-