Jæja, hvernig væri að fá spurningu hér??????
Samkvæmt öllu á ég réttinn hér og það er langt síðan hér hefur eitthvað verið ritað. Sjáum til...
Maður situr á stól í miðju herbergi með fæturna í bala og hugsar stíft.
Hvaða atriði og hvaða mynd?
Nei.
Er nokkuð fleira í balanum?
Er myndin gerð árið 2000 eða seinna?
Er nokkuð fleira í balanum?
Já, vatn.
Er myndin gerð árið 2000 eða seinna?
Hún er útgefin 2005.
Gerist þetta atriði í Bandaríkjum Norður-Ameríku?
Ég er heldur lélegur í landafræði en þetta er mynd sem gerist ekki beint í raunverunni.
Og hverju svarar þú þá spurningunni minni?
Frábært. Þú drapst leikinn, Skreppur. Ekki það að hann hafi verið sprækur fyrir.
Heldur líkvöku
Heyrðu, okei, þetta var atriði úr myndinni Constantine... Ef hún gerðist í Norður Ameríku þá andskotinn hafi það. Jarmi á réttinn. Ég hélt að fleiri myndu giska.
Jörð kallar Jarma. Í raun dugar hver sem er, sé hann nógu kvikmyndafróður.
Áfram með smjörið? hrifsar réttinn af Jarma
Maður arkar ákveðið niður tröppur í anddyri hótels. Þeldökkur maður stöðvar hann með því að grípa þéttingsfast um handlegg hans.
Í hvaða mynd skyldi þetta atriði vera?