Þér er fyrirgefið - og veitt keisaraleg náðun fyrir alla glæpi , framda og óframda ! vill vera elskuleg og miskunnsöm fyrsta daginn í embætti Má svo ekki bjóða þér í veisluna til hans Hákons míns (ég er reyndar farin, en hann er þar og Órækja (hann er reyndar dauður) og mér líst ekkert á drykkjuna á honum. Væri gott ef þú gætir aðstoðað við ákavítið.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Eigi kærum vér Íslendingar oss um láta í minni pokann. Skiptir þar engu þó þar eigi í hlut skítbuxar frá Svíaveldi. Fyrst þessi hópur ungra Íslendinga mun eiga erfitt með að elta boltatuðru þá er nafn þessa leiks dregur nafn sitt af ætti að senda þá í réttir austur í Þistilfjarðarmynni. Þar fengju kumpánar þessir að læra hvernig eltast eigi við rolluskjáturnar og eigi myndi það þýða að láta í minni pokann þar því hrútarnir í þeirri sveit eru sagðir hraustir og sumir hverjir tveggja manna makar!