— GESTAPÓ —
Ísland - Svíþjóð!
» Gestapó   » Efst á baugi
        1, 2, 3
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
krumpa 15/10/04 18:29

Þér er fyrirgefið - og veitt keisaraleg náðun fyrir alla glæpi , framda og óframda ! ‹vill vera elskuleg og miskunnsöm fyrsta daginn í embætti› Má svo ekki bjóða þér í veisluna til hans Hákons míns (ég er reyndar farin, en hann er þar og Órækja (hann er reyndar dauður) og mér líst ekkert á drykkjuna á honum. Væri gott ef þú gætir aðstoðað við ákavítið.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 15/10/04 18:30

Reikna með að það sé í Baggalútíu, mæti...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Íslendingur 16/10/04 02:42

‹Blótar herfilega og rífur hár sitt›

Eigi kærum vér Íslendingar oss um láta í minni pokann. Skiptir þar engu þó þar eigi í hlut skítbuxar frá Svíaveldi. Fyrst þessi hópur ungra Íslendinga mun eiga erfitt með að elta boltatuðru þá er nafn þessa leiks dregur nafn sitt af ætti að senda þá í réttir austur í Þistilfjarðarmynni. Þar fengju kumpánar þessir að læra hvernig eltast eigi við rolluskjáturnar og eigi myndi það þýða að láta í minni pokann þar því hrútarnir í þeirri sveit eru sagðir hraustir og sumir hverjir tveggja manna makar!

LOKAÐ
        1, 2, 3
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: