Nú fer ég fram á að þetta landslið okkar í fótbolta verði lagt niður. Og þar afleiðandi allur fótbolti á íslandi. Þessi Vestmannaeyjar geta haldið áfram að spila sinn fótbolta utan Íslands.
Athygliverð hugmynd. Fyrst mundi ég samt vilja láta kanna hvað kemur fyrir leikmenn þegar þeir ná 21 árs aldri. Málið er nefnilega að u21 - landsliðið okkar er að standa sig skrambi vel (þó að því sé ekki hampað í fjölmiðlum), hvað gerist svo ? Fá þeir allir staurfót á 21 árs afmælisdaginn ? Nei, bara spyr, veit annars ekki mikið um fótbolta og fylgist aðeins með af fagurfræðilegum ástæðum.
Jahh það er góð spurning. Ætli þetta sé launamál?
þegar betri knattspyrnumenn landsins ná tvítugsaldrinum þá fara þeir yfirleitt til noregs að spila og öll vitum við hvað noregur getur gert fólki...
Ég ætlaði að fara að halda mikla ræðu um þetta allt saman en úr því sem komið er...who cares?
Bíð óþreyjufullur eftir ræðu sem inniheldur eftirfarandi:
„Knattspyrna er heilsuspillandi og hefur valdið ómældu tjóni á sálartetri okkar minnstu meðbræðra. Ákveðið hefur verið að leggja knattspyrnu niður í núverandi mynd og vera þannig í fararbroddi siðmenntaðra þjóða í að hvetja landa sína til að tala saman um ljóðabækur, hörflíkur og bróderingar.
Einnig mun ríkisstjórnin og Íþróttabandalagið vera leiðandi í að aðstoða fyrrum unnendur knattspyrnu til að finna tilgang lífsins aftur þar sem samkvæmt sálkönnunum hefur komið í ljós að ástæða tilgangs lífsins hefur því miður skotið rótum sem knattspyrna annara í huga þessa týndu sála.
Núverandi ummerkjum um þessa íþrótt verða máð út skipulega með brennslu á íþróttasíðum blaðanna, bræðslu á verðlaunamálmum sem dreift hefur verið og þeim mannvirkjum sem notuð hafa verið fyrir knattspyrnu verður breytt í krokketvelli.“
Hrökklast aftur á bak og hrasar á krokkethliði[/s]
Hvað er þetta knattspyrna? klórar sér í höfðinu
Áhm, verð nú að segja , þrátt fyrir þetta allt saman - og ég er sammála ykkur upp að vissu marki - að mér fannst ekkert leiðinlegt að horfa á EM í sumar ... horfir dreymandi út um gluggann og rifjar upp sælustudir við sjónvarpið; bara hún og Ruud... Ha, var ég að segja eitthvað ? Hrökklast aftur á bak og hrasar við, forðar sér út
Nú fer ég fram á að þetta landslið okkar í fótbolta verði lagt niður. Og þar afleiðandi allur fótbolti á íslandi. Þessi Vestmannaeyjar geta haldið áfram að spila sinn fótbolta utan Íslands.
Ég er hjartanlega sammála Frella.
Nú fer ég fram á að þetta landslið okkar í fótbolta verði lagt niður. Og þar afleiðandi allur fótbolti á íslandi. Þessi Vestmannaeyjar geta haldið áfram að spila sinn fótbolta utan Íslands.
Ég er hjartanlega sammála Frella.
Svei mér þá ef ég er það ekki líka.
Erum við að tala um sama Ruudinn ?
Ruud Reginalds?
Þið megið ráða hvort við unnum 8-1 eða 64-4.
Útgáfu eitt eða tvö?
Bíðum eftir 3 og sjáum þá til.