Forspil
eins og hrefnu belji blóð
bútuð hér á veiðislóð
vellur ferlegt vísnaflóð
vænleg berast stykki góð
Eitt lítið sjónarspil
Hafið svellur, gumi gellur
gikkur smellur, heyrist hvellur
skeyti brellins bura skellur
blóðið vellur - tjaldið fellur
Sleikir út um og glottir græðgislega
Barbapabbi er barbari
Að því gefnu að við stefnum
á að hefna nú við nefnum
viðkæmt efni Watson refnum;
Veiðum hrefnu hér á vefnum!