Þau skipti sem sullast hefur kók út um allt verður ekkert skínandi hreint hjá mér heldur meira svona klísturskleprar, tala nú ekki um ef að maður missir af smá bletti. Þá dugir ekkert minna en alþrif. Annars skilst mér á CSI að klórlausnir séu best til þess fallnar að eyða blóðflóði og á líka að geta fjarlægt leifar af byssupúðri. Merkilegt nokk hvað má læra í sjónvarpinu. Starir þegjandi út í loftið og íhugar hvort þessi fróðleikur komi einhvern tíma að góðum notum
Coca Cola er heimsins stærsti kaupandi náttúrulegrar vanillu. þegar NýKók (New Coke) kom á markaðinn 1985 hrundi efnahagur vanillulýðveldisins Madagaskar vegna þess að NýKók notaði gerviefnið vanillín í staðinn fyrir vanillu(eins og í Pepsí - sem er satan).
Efnahagur Madagaskar rétti ekki úr kútnum fyrr en eftir að NýKók floppaði, Classic Coke var sett aftur á markað og útflutningur Madagaskar á vanillu tvöfaldaðist.
Það er gaman að vita til þess að gosdrykkur getur nánast lagt heila þjóð í rúst.
Ástæðan fyrir því að það var kallað Coca Cola á sínum tíma var sú að það var gert úr, eins og áður hefur komið fram, kókalaufum og kólahnetum (á engilsaxnesku: Colanuts). Ég veit ekki hvort hneturnar eru enn notaðar í drykkinn, en mig grunar að svo sé. Gefur frá sér vellíðunarstunu
[Tæmir hálfs lítra Pepsíflösku og gefur frá sér vellíðunarstunu]
Haldið ykkur nú...
Coca Cola er selt í ílátum úr gleri, plasti OG áli!
Ótrúlegt!
Í Bandaríkjunum er Coca-cola sætt með korn-sýrópi en ekki sykri. Athyglisvert.
Sjá nánar: http://en.wikipedia.org/wiki/Coca-Cola#What_goes_into_Coca-Cola.3F
Í Bandaríkjunum er Coca-cola sætt með korn-sýrópi en ekki sykri. Athyglisvert.
Sjá nánar: http://en.wikipedia.org/wiki/Coca-Cola#What_goes_into_Coca-Cola.3F
Hmmm... Áttu ekki við maíssýróp?
Já, og Coce er algerlega ódrekkandi... ÓBLANDAÐ.
Kók var markaðssett í seinniheimsstyrjöldinni með frekar skemmtilegum hætti. En hönnun kókflaskanna sjálfra kom þar við sögu. Einhverjum markaðsmanninum datt í hug að hanna flöskuna þannig að hún minnti á vaxtarlag kvennmans en kók var sent í stórum stíl til bandarískra hermanna sem voru "over there" í WW2 en hönnunin átti að vekja upp nostalgískar kenndir hermannana gagnvart heimahögunum og stúlknana sem biðu heima og þannig samtvinna þessar kenndir og tilfinningar við kók, tókst það með afbrigðum vel og hefur sú hönnun haldið velli alllar götur síðan, hönnunina má enn sjá t.a.m í lítilli kók í gleri.
Annað atriði sem kom við sögu í hönnun kókflöskunnar var að það átti að vera hægt að þekkja hana þó það væri búið að brjóta hana í þúsund mola
Í Bandaríkjunum er Coca-cola sætt með korn-sýrópi en ekki sykri. Athyglisvert.
Athyglisvert og ógeðslegt. Fyrir þá sem eru með næma bragðlauka og finna fyrir muninum er bandarísk maís-kók ódrekkandi.
Forvitnilegt. Nú langar mig að smakka bandarískt kók, svona til að prófa.
Mig hefur alltaf langað að smakka þetta New Kók þeirra sem misheppnaðist svo algerlega að það er orðið kennslubókardæmi um slæma markaðssetningu.
Eini heppnaði Kóla-drykkurinn sem ég hef smakkað er hið klassíska Coca Cola eins og selt er hér á landi...langar ekki að smakka neitt annað...
Sammála Skabba. Ég segi það enn: Það á ekki að breyta nokkrum sköpuðum hlut, nema ég græði á því! Hallar sér aftur og hugsar um gömlu góðu dagana í Yukon. Dæsir og tekur til við að fægja happapeninginn