— GESTAPÓ —
Nýyrðasamkeppni Schultzs
» Gestapó   » Lygilega vinsælir leikir
        1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 94, 95, 96  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Goggurinn 1/9/04 22:46

Hrátur

Þeir er kaffi drekka úr glösum

Goggurinn. Vandamálaráðherra Heimsveldisins og varaforsetaherra. Sendiherra Páskaeyju. Staðfestur og rykfallinn erkilaumupúki. Stoltur eigandi eigin sálar.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Schultz 1/9/04 23:33

Glassypar

Fólk sem er á Atkins kúrnum

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 3/9/04 16:08

Atkinskúristar

Það að detta eigi neitt orð í hug í nýyrðasamkeppni Schultz

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 3/9/04 16:18

Schultzorexia

prikið sem lafir úr rimlagardínum og er snúið til að loka þeim og opna

Gagnvarpið er komið til að vera
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nykur 3/9/04 16:51

Snúðuskapt.

Það að langa á pöbbinn með strákunum en nenna því samt ekki.

Krónprins & Forsætisráðherra Baggalútíu • Baggalútíu allt!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hundinginn 3/9/04 16:52

Femdrýsill

Maður sem er ekkert allt of hrifinn af feministum.

Eigandi Kaffi Blúts. • Lifi sannleikurinn!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 3/9/04 18:13

Blásokki

Tæki sem flytur boð á milli húsa í gegnum línur.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 3/9/04 19:01

Kjaftagagn

Verkfæri til að fjarlægja bilaða glóþræði úr ljósaperum

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Schultz 3/9/04 19:05

Afglyðill

<a href="http://jeffcovey.net/tmp/hatt-baby/">Svona</a> tónlist

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 3/9/04 21:58

Olíusöngvar

Ef þú ert að tala virkilega illa um einhvern og hann kemur óvænt.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Schultz 4/9/04 00:29

Tilvitnun:

Það að detta eigi neitt orð í hug í nýyrðasamkeppni Schultz

Rétt að setja eignarfalls-essið þarna fyrir aftan kæri Vlad: "Nýyrðasamkeppni Schultzs"

Já, þegar illur kemur þá um er rætt..?

Óvænt baktalsþolendainnkoma

Far eftir kennaratyggjó á vegg

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Frelsishetjan 4/9/04 00:54

klestó

áfengur drykkur sem gerður er úr humlum

Drottnari allra vídda. Guð alls svalls. • Eigandi sálar hins Mikla Hákons. • Eigandi Nærbuxna. • Sjálfkjörinn formaður Ritstjórnar.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 4/9/04 02:11

humlesín

Að sötra bjór og vita ekki hvort maður eigi að skella sér á einn í viðbót.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mosa frænka 4/9/04 08:37

mungeta

að þola ekki dökkan bjór í heitu veðri

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 4/9/04 12:01

Hitadökkölsóþol

Sú tilfinning er fylgir því að verða fyrir einhverri algjörlega nýrri reynslu hér á Gestapó.

Schultz mælti:

Tilvitnun:

Það að detta eigi neitt orð í hug í nýyrðasamkeppni Schultz

Rétt að setja eignarfalls-essið þarna fyrir aftan kæri Vlad: "Nýyrðasamkeppni Schultzs"

‹Líður hálf undarlega yfir að fá á sig fyrstu kvörtunina yfir málfari/stafsetningu á öllum sínum Gestapóferli. Einhverntíma er allt fyrst›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Agúrkan 4/9/04 12:19

Gestaóp

Þegar forhúðarhaftið festist á milli framtanna við munnmök.

Hrjúf og hnúðótt húðin gæfi Agúrkunni sérstaklega aðlaðandi yfirbragð ef ekki væri fyrir fjólubláann blæinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 4/9/04 13:05

Tannmakafesting

Að vakna upp á laugardegi, halda að það sé mánudagur og ákveða að það sé sunnudagur.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Schultz 4/9/04 15:39

Kvartsýni

Tilvitnun:

Schultz vill meina:
Tilvitnun:
Það að detta eigi neitt orð í hug í nýyrðasamkeppni Schultz

Rétt að setja eignarfalls-essið þarna fyrir aftan kæri Vlad: "Nýyrðasamkeppni Schultzs"

[ Líður hálf undarlega yfir að fá á sig fyrstu kvörtunina yfir málfari/stafsetningu á öllum sínum Gestapóferli. Einhverntíma er allt fyrst ]

Já, en þetta gestaóp er auðvitað komið til af því að nafn mitt fæst ekki samþykkt af mannanafnanefnd og því ekki að undra þótt beygingar á því séu óvenjulegar og ósamþykktar.

Jæja áfram með smjörið:

Afkomendur Jörundar hundadagakonungs

        1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 94, 95, 96  
» Gestapó   » Lygilega vinsælir leikir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: