— GESTAPÓ —
Nýyrðasamkeppni Schultzs
» Gestapó   » Lygilega vinsælir leikir
        1, 2, 3, ... 94, 95, 96  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 25/8/04 14:43

Selskapur

Það að geta hnerrað með opin augun.

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Schultz 25/8/04 15:17

Að starhnerra

Taka puttaling upp í bílinn

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 25/8/04 15:27

Að láta "putta sig".

Það að standa svo hratt upp að maður fellur í yfirlið.

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 25/8/04 15:36

Risfall

Að sjá eftir síðasta molanum

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 25/8/04 16:43

Molsvekkja

Þegar maður er búinn að verzla rosalega mikið og það er ekki innistæða á kostinu.

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
voff 25/8/04 18:26

kortersseinkun eða Mall-svekkja

Það þegar tyggjó missir bragð og lit eftir að hafa verið tuggið í smástund

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 25/8/04 19:20

Bráðabragðadeyfð

Þegar menn stinga sig til sunds og missa sundskýluna.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hildisþorsti 25/8/04 21:53

Skýlunauð (sbr. "Hann lenti í skýlunauð og varð að bíða þangað til allir voru farnir upp úr lauginni")

Það að geta ekki pissað vegna sperrings á morgnana. (Á sennilega aðeins við um karlmenn)

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 25/8/04 23:06

Hlandpína

Þegar maður vaknar eftir fyllerí í öðru landi, með hjartalaga tattú sem stendur á Boris.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 25/8/04 23:12

Drykkjusýki

Að fá sting í hægra auga við tedrykkju

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 25/8/04 23:16

tenæmi

Að falla fram á lyklaborðið, slá óvart inn bigboobs.com, opnast téð heimasíða og yfirmaðurinn kemur óvænt inn á skrifstofuna.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 25/8/04 23:19

Óvartperri

Að koma að undirmanni að skoða ljótukallasíður

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 25/8/04 23:29

Læðuperri

Maður er í bíó, er að horfa á spennandi mynd og svo er allt í einu spennandi ástarsena...í sætinu fyrir framan mann.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 25/8/04 23:32

Perralán

Gleyma sér í bíói og fara að kela, verða vandræðalegur þegar kallinn fyrir aftan er hættur að horfa á myndina

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hildisþorsti 25/8/04 23:34

Afskakaður

Sá sem borðar ekki Pizzu

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 25/8/04 23:41

flatbökufóbíingur

Það þegar sjálfvirk hurð opnast ekki fyrir manni

Gagnvarpið er komið til að vera
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 26/8/04 09:47

Andsjálfvirk neitun.

Það að vakna um miðja nótt og önnur hendin á manni er alveg dofin.

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 26/8/04 10:36

Handnauð

Það að kaupa sér síma á tuttugu og fimmþúndund kall og sjá hann á tilboði á tíu þúsund kall í sömu verslun, tveimur dögum seinna.

        1, 2, 3, ... 94, 95, 96  
» Gestapó   » Lygilega vinsælir leikir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: