Sjálsskammarþrifablæti
Að þrífa íbúðina sína þangað til maður er orðinn ógeðslegasti hluturinn í íbúðinni.
Umhverfisþrifill.
Þeir/þær sem smakka það bara þegar makinn er að heiman.
Smakkleysingjar
Þeir sem bragða vín eingöngu tvisvar á ári - á þorra og í réttum.
Tvíæringjar
Góða þýðingu á Rigged
Reyrður. Héðan í frá er reyrður góð þýðing á áðurnefndu orði.
Aftur er beðið um ágæta þýðingu. Nú á því, er á engilsaxnesku kallast Cerebral Palsy.
Reyrður er flott þýðing á rigged, "þessar kosningar voru reyrðar!" Ljómar upp
Heilalömun væri frekar bein þýðing Cerebral Palsy, góð þýðing væri kannski eitthvað erfiðara
Núna vantar mig þýðingarríka þýðingu á Cola
Krókódílatár
Fitness
Útvegspil.
Fólk sem stoppar á miðjum þjóðveginun án þess að keyra útí kant til að taka myndir af fuglum.
Sá sem það gerir er þjóðvegaþöngull.
Mig vantar núna orð yfir litla 'tippið' sem maður þrýstir á til að fá vökva út úr spreyflösku/brúsa.
Er það ekki úðavaki?
Mig vantar orð yfir það að vanta ekki nýyrði fyrir neitt.
Ø
Hvað heitir þessi stafur: ñ
Tvín. eða Tví-N (Þetta er staðgengill fyrir tvö N)
Litlaus dagur sem ekkert ætlar að verða úr.
ñ er borið fram í spænskunni eins og né eða njé eða nj.
Ég held að þú sért að tala um miðvikudag Grágrímur. Getum eflaust breytt nafninu í einhvað ókristnitökulegra, svo ég mæli með styttingu á gamla Óðinsdeginum, sem gæti annaðhvort verið ódagur eða ódámur.
Mér vantar endilega orð yfir pomade. Ekki hægt að kaupa það lengur einu sinni, bara hárgel og vax sem láta menn vera eins viðhorfs og klósettbursta.
Spjátrungsfeiti.
Það vantar orð yfir þá áráttu sums fólks að reyna að telja manni trú um að eitthvað sé gott, þó manni finnist það virkilega vont.
Ruslaviðhorfsviðsnúningsàràtta.
Óvissan um hvort maður eigi að leggja í að kynna sér nýjasta verk listamanns sem manni líkar við af ótta.við að hann valdi manni vonbrigðum?
Áhorfshik/áheyrnarhik - Dæmi: Ég er með áheyrnarhik gagnvart nýju plötunni frá Paul McCartney, en ég hef reyndar fundið fyrir því frá því á áttunda áratugnum.
Það að þurfa að halda partý til að losa sig við áfengisbirgðir sem liggja undir skemmdum.