Fortímahneigð
Það ástand sem manneskja er í þegar hún er ástfangin en vill ekki horfast í augu við það.
Ástskilorðsbundin
Atvikið sjálft þegar versti mögulegi hlutur gerist á versta mögulega tíma
Óskundastund
Þegar maður fer að leita sér að fötum til að kaupa en maður finnur engin föt því annað hvort eru þau of lítil eða of stór.
Rúmtuskubarningur ("rúm"-forskeytið vísar hér í rúmmál eins og gefur að skilja).
Að hafa keypt einum of marga agalega sniðuga kassa í ónefndu húsgagna-Svíabæli hér í bæ.
Ofkassakaup
Skrýtna tilfinningin þegar maður áttar sig á að púðinn sem maður situr á er ekki púði heldur köttur sem er ekki ánægður með að vera tekinn í misgripum fyrir púða.
Hræðslukattst.
Maður sem les rauðu seríuna en þvertekur fyrir það við konu sína.
Seríuþvertakari.
Sú athöfn að viljandi setja rauðan þvott í sömu vél og allar hvítu skyrtur betri helmingsins kvöldið áður en hann fer í "viðskiptaferð" til útlanda.
Bleikólund
Að þola ekki nefsprey en þurfa á þeim að halda vegna kvefs.
Nefúðaólund
Að vilja sænga með maka sínum en geta það ekki sökum þreytu beggja aðila.
Graftarfrygð.
Sterk þörf kvenmanns til að klæðast fötum einhvers af hinu kyninu í rómantískum tilgangi að öllum öfuguggahætti slepptum.
Nærbrókabreimi.
Sú árátta sumra kvenna að setja svona 20 sinnum of mikið ilmvatn á sig.
Anganþykkt (stúlkan var svo anganþykk að reykskynjarinn fór í gang)
Að vera með báðar fætur í sömu skálminni.
Einskálma
Þurfa alltaf að lesa eitthvað á meðan setið er á klósettinu.
Úrlesinn. (að lesa meðan losað er við úrgang, sé eingönu um fastan úrgang að ræða er viðkomandi skítalesi)
Sú árátta að segjast ólesinn fyrir erfitt próf sem allir eru búnir að puða og streða fyrir en vera samt sem áður alltaf einn af þeim hæstu í bekknum (ath. stelpa/kona er óásættanlegt svar)
óþolandi
Að kunna ómögulega að lesa út vegakorti, velta því stöðugt fyrir sér en ná aldrei að snúa því rétt.
Kortablinda
Sá sem mælir bræðslumark videospólufilmna. (sem er óvenju lágt)
Filmubræðingsfífl.
Sá sem syngur manna hæst án þess að taka eftir eigin lagleysi.