Gæti maður fengið örlítið meiri dískant?
Ingimar?
Var þetta ekki á plötu sem Halli og Laddi gáfu út ásamt Gísla Rúnari?
Þið eruð nú meyri nýgræðingarnir í þessum þynku málum, sko svona fer maður að þessu:
Áður en drykkjan er hafin skal fórna einum bjór í könnu og setja inn í ískáp.
Svo er farið að detta í það og vera fullur og allt það.
Þegar þú vaknar(verðu að vakna heima hjá þér) þá er bara að stökkva á lappir og hlaupa inn í ískáp, og áður en þynkan nær þér, dúndra einni eða tveimur Treo í flatann bjórinn, sem lifnar við á leifturhraða, svo er að dúndra þessu í sig öllu í einum rykk.
Flýja aftur inn í rúm, áður en þynkan fattar nokkuð eru þið sofandi aftur, þegar þið vaknið aftur seinna um daginn, er þynkan horfinn eins og vondur draumur.
Njótið vel.
Agúrkan nýtur þess að gefa góð ráð, jafnvel þótt hún sé ekki til og geti þessvegna ekki verið þunn
En séuð þér eigi til þá hafið þér þar af leiðandi eigi nokkru sinni fundið til þynnku og því tortryggjum vér ráð yðar í þessu efni. Fer að hafa áhyggjur af að vera farinn að tala við sjálfan sig þar eð Agúrkan er að líkindum eigi til. Veltir fyrir sér hvort þetta sé tilefni til áhyggna
Hafðu ekki neinar áhyggur af þessu Vladi, kemur fyrir bezta fólk að ávarpa mig í tíma og ótíma, verzt þykir mér þó er ég tala við sjálfann mig, nema ef vara skyldi þessar bévítans "z" sem læddust inn í textann minn.
vaknar snemma, stekkur fram úr rúminu án þess að þynnkan taki eftir og hleypur í átt að ísskápnum, beint á hann og steinrotast
vaknar þunnur á eldhúsgólfinu
ooooohhhh...
mér sýnist að baggalútía þurfi á meðferðarstofnun að halda. réttast væri að hefja síðan AA fundi hér á vefnum því víndýrkandi lútarnir eru að hengjast í stjórnleysi.....
mér sýnist að baggalútía þurfi á meðferðarstofnun að halda. réttast væri að hefja síðan AA fundi hér á vefnum því víndýrkandi lútarnir eru að hengjast í stjórnleysi.....
Næsti AA fundur verður einmitt haldinn á Skemmtistaðnum Nærbuxum í Baggalútíu.
Tilboð á barnum og lengri opnunartími.
Kveðja Frelsishetjan.
Ég er löngu hætt að drekka áfengi og nota hættuleg efni.
Nota nú bara blóð úr deyjandi fólki en það er ekki út af vímunni, það er bara aukaáhrif sem ég get ekkert gert í
Skallar næsta vegg vegna augljósar afneitunar sem ég er enn einusinni dottinn í, djöööö...
Þetta var bara fínn fundur á Nærbuxunum.. Frelsishetjan hefði þó mátt sleppa síðustu þremur glösunum. Nafn staðarins var farið að hitta hann fullglatt. Aðrir voru bara hressir.
Þynnka í kjölfar þykkilda jafnvel...?
Er alveg að gleymast að þynnka er líka sálfræðilegt fyrirbrigði. Allavegana er hún það hjá mér að vissu leiti. Ég get viljað sjálfan mig til að minnka þynnkuna töluvert... svona oftast nær.
-
Er alveg að gleymast að þynnka er líka sálfræðilegt fyrirbrigði. Allavegana er hún það hjá mér að vissu leiti. Ég get viljað sjálfan mig til að minnka þynnkuna töluvert... svona oftast nær.
-
Kyrjar stanslaust ... ég er ekki þunnur ... ég er ekki þunnur ... ég er ekki þunnur ...
Einn falsmiðlanna flutti nýlega af því fréttir að á markað sé að koma þynnkubani er þróaður var af KGB í kalda stríðinu...