Úff, ég er svo lélegur í þessum leik...
Sá vinnur réttinn til að spyrja, sem kemur fyrstur með skondna fótboltavísu um KR eða Fram...
Boltann eltu, bitu, geltu.
Blámenn röndóttir.
Utanveltu, engum skelltu,
Aular dyntóttir.
Hvaða norður-írski markvörður stóð í marki Arsenal lengi og vel á 8. og fyrrihl. 9. áratugarins og var sagður hafa stærstu hendur af öllum markvörðum í Englandi (og þótt víðar væri leitað)?
Pat Rice?
Ég er alveg patt og mér sýnist allir aðrir vera það líka.
Bob Wilson?
hugsar með sér, hvað í helvítinu er ég að gera hér, en áttar sig snarlega á að hún er ekki til, svo þetta gerir ekkert til
Jæja, það kemur víst ekkert svar við þessu þannig að ég hendi fram spurningu:
Hvaða frægi Brasilíski framherji segist ekki geta hugsað sér annað en að fara á næturklúbba á hverju einasta kvöldi og því ekki geta mætt á æfingar fyrr en eftir hádegi?
Völler greyið er fá Germaníu.
Romario þá?
Jú, Romario er það.
Jibbí! Vonandi kemur spurning innan tíðar.
Á árunum 1975-77 spilaði Pele með bandarísku liði í knattspyrnu, hvaða lið var það?