Svona svona, bara afþví að þú ert ömurlegur í fótbolta þarftu ekki að gera grín að þessari göfugu íþrótt.
Eigum við ekki bara að segja að þetta sér rétt hjá honum WG, alltént voru þetta liðin í 1., 2. og 3. auk bikarmeistaranna. Óhugsandi finnst mér þó að gefa rétt fyrir það að nota "Stórveldið" fyrir Knattspyrnufélag Reykjavíkur. En svona er fyrir mér komið...
WG, þú átt leik!
Blix, Fylkir, FH og Stórveldið?
Í Kópavogi eru nokkrir, er nota orðið stórveldið yfir handknattleikslið bæjarins, svo eigi er víst um hvað er átt, þó víst sé það víst í tilfelli yðar.
Það er, já, bara eitt handknattleiksfélag í Kópó, en það er ekki bara eitt handknattleikslið þar.
Eins og allir vita þá eiga menn við KR þegar þeir segja Stórveldið.
Bull er þetta, Kargur er bara blindaður af ást á Reykjavík. Eina stórveldið á Íslandi er körfuboltaveldi, og er staðsett í Stykkishólmi.
Eina stórveldið á þessu landi er væntanlega KR, en ég á víst réttinn þannig aaað ég spyr :
Hvað eiga Paul Ince, Michael Owen og Peter Beardsley sameiginlegt ? ( Verður að vera frekar nákvæmt )
Þeir eru allir frá West Ham.
Þeir hafa allir leikið með hinu stórkostlega Liverpool. Þeir hafa einnig leikið með skítaliði nokkru frá Manchesterborg.
Þetta eru allt dvergvaxnir örvhentir leðurhommar með dislexíu.
Þeir hafa allir verið böstaðir með vændiskonu.
Hvað er annars þetta Liverpool sem er nefnt hér að ofan ?
Kargur hefur rétt fyrir sér. Ákaflega menntað gisk hjá Hlebba samt sem áður.
AAAAAH. Gefur frá sér vellíðunarstunu Auðvitað var ég með þetta...
Hvur er feitasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar?
Að utanskyldum sóma Íslands, sverði þess og skildi: Eiði Smára Arnórssyni?
Paul Gasgoine.
Vissulega er Gazzi ögn búttaðri en hann ætti að vera. En þar sem hann er alfarið búinn að snúa sér að kappdrykkju er hann hættur í ensku úrvalsdeildinni. Annars væri hann sjálfsagt í toppbaráttunni um feitasta leikmanninn.