Líklega er til annar þráður fyrir þannig vísur en datt í hug að poppa þetta aðeins upp og búa til nýjan þráð:
Grautinn set ég saltið í
synd'í moldarbarði
í grjótið leggst og krunka krí
klíf svo fjöll í garði
Mælir Haarde mikið satt.
Metangas er sett á kút.
Datsuns best er dekkið flatt.
Dásemd er á Baggalút.
Lúturinn mikið leiðist oss
lífsnauðsyn ei matur
eigi fylgir kristni kross
kossum fylgir hatur
Öl er bölvað böl
Baggalútur slakur
Versta sem á er völ
Vamban aldrei rakur
Brauðin skera skeiðarnar
Skíta fegurðardrottningar.
Sauðir gera fyl fullar.
Full er Dorrit lotningar.
Edrú þamba ákavít
ekki bjórinn teyga
vaskur ávallt viskí spýt
versla enga fleyga
Ekki finnst mér epli góð.
Eftir stillu lægir.
Í vötnum öllum glitrar glóð.
Gerast hundar slægir.
Fjölgar heldur líffærum.
Í fjörkálfinum Davíð.
Snapmenni hafði á snærum.
En snilli var þeim fátíð.
Snapmenni = náungar sem snapa sér stöður og frama með því að sleikja r***inn á ráðamönnum.
Vanda skaltu í kýrnar vín
vodka flestar drekka
pilsuM KLÆÐAST KJELDUSVÍN
KÉTTIR SMÍÐA REKKA
Hvítnar gull í hreinviðri
harnar drulla í sólskini
Stendur bulla í strokkloki
stúlkur sulla í mjólkinni
Höf: var Skagfirskur gleðimaður
Mysa í kaffi kynstur góð
kálfar tölfur smíða,
gott er að hafa snjó í glóð
gala hrafnar víða.
Út'er veður ansi vont
varla ský á himni
Bestur, mestur, laus við mont
margrómaða kímni
Eta kindur kæfu og smér.
Kappinn Haarde minnkar skatt.
Fitan mælist mest á þér.
Mælir íhald ætíð satt.
Frerajörð á fróni er
fílahjörð á sundi
hjólagjörðin - grútarsmér
gamall vörður - lundi
Geitin hefur hanastél
hundurinn syngur messu,
á fjöllum bátur flítur vel
fór hjá rétt í þessu.
Allt er þetta satt og slétt
sver við guð minn góðan
Flýgur Lundi furðu létt
litfögur er móðan
Sá eg bruna í skíjum bíl
brosandi lömbinn sjúa,
skarfinn sita létt á fíl
skötu um loftið fljúa.
Út'er rigning út'er rok
rammíslenskt er veður
Myglubrúna moldarfok
mikill skaði skeður