Mig minnir að hann hafi byrjað með því að selja fólki skóhlífar sem matvæli. Er þetta e.t.v. bara misminni mitt?
Mig minnir að endlausn níska Lazlos hafi byggt upp veldi hans.
Í hvaða bók birtist Prófessor Alsoddi og hver var hans helsta tómstundaiðja?
Var það ekki í Leyndardómur Einhyrningsins og vasaþjófnaður var hans tómstundaiðja.
Vér gefum Tinna rétt fyrir upphaflega svarið svo þetta haldi áfram. Hinsvegar kom í ljós hvernig Carreidas varð ríkur er honum var gefið lyf til að fá hann til að gefa upp númer á bankareikningi. Það gerðist eigi en í staðinn kom fram að hann varð ríkur með hnupli og svindli, hann byrjaði barnungur að stela frá fjöldkyldu sinni.
Ohh, Goggurinn vissi þetta.
Já, Hlégestur hefur rétt fyrir sér, í þetta skiptið. Hann er skjótari en skugginn að skjóta...
Helsvítis vesin hvað Tinnabækurnar hafa týnt tölunni hjá manni. Maður verður að kíkja í Kolaportið um næstu helgi
Tinni lesandi tinnabækur ... er það ekki álíka eins og fyrir venjuegt fólk að glugga í gamlar dagbækur og minnispunkta frá sjálfum sér
Jú, reyndar, Voffalingur, en þær vilja þó týna tölunni með tímanum. Rétt upp hönd þeir sem eiga allar skólamyndirnar sínar frá því í núllbekk!
Réttir ekki uppp hönd
Réttir eigi upp hönd; veit eigi hvort allar myndirnar eru til og mun aldrei vita sökum minnis er eigi er óskeikult
Iss, það er greinilegt að Hlégestur á við sama vandamál að stríða að Tinnabækurnar hans hafa týnt tölunni, þannig að allur fróðleikurinn er geymdur í langtímaminninu.
En þessi spurning finnst mér nú frekar klén, (en, taktu það samt ekki óstinnt upp, kæri vinur) en George Remi var óneitanlega ektanafn Hérgés sjálfs.
Ókei, nefnið eina bók sem Ólívera Dos Fígúras kom fram í og frá hvaða landi kemur hann?
Hann leit aðeins við í bókunum "Kolafarmurinn" og "Vindlar farós". Gogginn minnir að hann hafi verið spænskur.
Má vera.
Í þetta skiptið hjálpuðust Goggur og Voffi um að koma með rétt svar og því fær sá sem er fyrstur til réttinn á því að bera upp Tinnaspurningu.
Jei, fyrsta spurning Goggsins. Hvaða þrír laumugestir voru um borð í mánaflauginni í tunglfararbókunum? ("eldflaugastöðin" og "í myrkum mánafjöllum")