Og eigi má gleyma ruglingnum með rúm, dýnu og sæng. Vér verðum að játa að vér munum eigi alveg hvernig þetta er í t.d. hinum norrænu málunum. Fróðlegt væri að vita hvernig á því stendur að öllum þjóðum er nota þessi orð (eða hliðstæð) hefur tekist að ruglast svo gjörsamlega í merkingu þeirra, að einni þjóð undanskilinni. Starir þegjandi út í loftið
Hér finn ég þennan ágæta vettfang fyrir umkvörtun sem hefur leitað mikið á mig nýlega.
Ofbeldi. Hverskonar orð er það eiginlega? Forskeytið of- gefur til kynna að eitthvað sé í miklu magni, svo er hér verið að tala um of mikið af beldi? Er þá til vanbeldi líka? Getur verið að þegar hringt er á lögregluna vegna óspekta í miðbænum um helgar þurfi hún fyrst að meta hvort nógu mikið beldi hafi verið framið áður en hún getur handtekið nokkurn mann? Er mögulegt að beldi í réttu magni sé eðlilegt á heimilum? Er vanbeldi ólöglegt?
Og óbeldi er þá líklega algjör skortur á beldi. Hvort er beldi ástand eða aðgerð ?
-
Skyldi það eigi vera aðgerð.
Gæti verið að orðið baldinn komi hér eitthvað við sögu? Að óbeldaður maður sé baldinn?