Yoko Phono Mono Stereo
Nú held ég að þú sért á villigötum, Vamban minn. Hefur þessi lína virkað á margar?
Ein hérna:
Hvernig væri ef ég og þú og þú og ég myndum bergja á þessu líka fína ákavíti?laumar smá kóbaltsjarma útí
Þagnar loksins, dregur sig í hlé og fylgist með framvindu mála
Hey Júlía, flottar tennur! Roðnar og flissar eins og smástelpa
Fylgist með Leibba. Svipur óræður en morðglampi í augum.
Fylgist með Leibba. Svipur óræður en morðglampi í augum.
tekur niður af sér grímuna, fær ofbirtu í augun, kreistir út úr sér afsökunarbeiðni og hleypur af stað eitthvert burt
Það virkar alltaf best hjá mér að fara inn á kvennaklósettið og pissa með opna hurð. Þær eru svo forvitnar að þegar þær sjá hann þá verða þær ólmar í mig.
Hæ Vamban. Bæði orðheppinn og sætur.
Jú, sá er maðurinn. Sæl. Já þú tókst eftir því Dáist af ásjónu sinni í spegli hve afskaplega myndarlegur ég er. Þú ert nú ekki ómyndarleg sjálf.
Vamban hlýtur að halda að hann hafi ásjónu mína. híar á Vamban fyrir að vera svona klikk
Sú allra versta hlýtur bara að vera: ,,ég er með lotukerfið hangandi í loftinu fyrir ofan rúmið á mér, viltu koma og skoða það?"...ææææææææ...þessi var reyndar í unglingablaði fyrir lélegustu línur allra tíma, línur á borð við - faðir þinn hlýtur að vera þjófur því hann hefur stolið stjörnunum af himnunum og sett í augun á þér verður verulega ómótt af væmninni. Verð ég þó að viðurkenna að ég hef fengið þessa línu. Já, 2 árum eftir að hafa lesið grein um lélegar pick up línur þá var ég í efnafræði. Með þessum líka myndarlega strák sem ég var ákaflega skotin í. Í miðri tilraun fer minn þá líka að tala um að vera með lotukerfið fyrir ofan rúmið og ég mætti koma að skoða. Mín viðbrögð: ég hló mig máttlausa og sagði honum að þetta væri toppurinn af lélegum pick up línum. Oh jæja, það varð víst lítið úr þessu skoti.
Góð lína: ég veit ekki. Best er bara að vera maður sjálfur. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Já, 2 árum eftir að hafa lesið grein um lélegar pick up línur þá var ég í efnafræði. Með þessum líka myndarlega strák sem ég var ákaflega skotin í. Í miðri tilraun fer minn þá líka að tala um að vera með lotukerfið fyrir ofan rúmið og ég mætti koma að skoða. Mín viðbrögð: ég hló mig máttlausa og sagði honum að þetta væri toppurinn af lélegum pick up línum. Oh jæja, það varð víst lítið úr þessu skoti.
Þú! Ert þetta þú!? Flissar að þessum frábæra brandara sínum
Einn sem virkar ekki: "Ég held að ég hafi verið með pabba þínum kór..."
Veltir fyrir sér hvort til séu pikköpp-línur er efnislega innihalda "vér teljum pikköpp-línur eigi virka" eða eitthvað í þeim dúr
Þær eru til þó ólíklegt sé að viðkomandi sé að þéra stúlkuna.
Segið bara við hana. Hey veistu muninn á Lego og kynlífi? Þá á hún að segja nei. Og þá segir þú, eigum við að koma að kubba??
Þessi var virkilega góður.