Óska eftir því að fá að vera hluti af þessari dásamlegu heild.
Kannski ég fái það hlutverk að semja vísur og ljóð sem eru tvíræðin..
Það tilkynnist hér með að fyrsta verk Hagyrðingafjelagsins verður að setja saman texta fyrir þjóðsöng Baggalútíu. Fylgist vel með á næstu dögum er ég mun tilkynna nánar hvernig það mun ganga fyrir sig.
Þarf að semja lagið líka eða er það sjáfval?
Ó Baggalútía með breiða faðminn sinn
þú berð oss upp að vanga þínum rjóðum.
Vex með göfga sálar allra von um sigur þinn
á veraldarinnar beisku göngu-slóðum. Gengur út og kastar upp
Vappað gat um völl í bæ
Vamban hitti þar,
sögðum báðir: halló, hæ!,
héldum svo á bar.
Hitti s.s. Vamban við Vegamót hvar veigar voru nærri, man ógjörla hvar endaði en öl var sopið og speki ropað.
Ef þið eigið leið norður, þá höldum við kvæðakvöld...
Hvernig væri það annars að koma á kvæðakveldi?
Þess má svo geta að Hagyrðinga Fjelagið fer á fullt eftir að allir eru komnir úr sumarfríum svo hámarks þátttaka náist.
Eigi vitum vér hver margir eru enn í sumarfríum en vér tökum oss það bessaleyfi að hefja hér umræðu um það þjóðþrifamál er þjóðsöngur Baggalútíu er.
Það eru nokkur atriði er vér höfum þar velt fyrir oss:
(1) Þarf að vera til lag við hann eða er nóg að um verði að ræða 'þjóðarkveðskap' ? Oss finnst þurfa lag. Þá er spurning hvort 'stela' eigi einhverjum þjóðsöng, t.d. þeim bandaríska (gæti þýtt málaferli), þeim rússneska (e.t.v. of kommalegur), þeim breska (myndi gleðja drottningu vora en gæti þýtt þorskastríð) eða þann þýska. Eða hvort stela á einhverju öðru lagi.
(2) Á að reyna að nefna einhverja raunverulega atburði á borð við hernaðarlega sigra í textanum eða á þetta að vera almennt lof um Baggalútíu ? Og á að nefna á nafn einhverjar mikilvægar persónur á borð við ritstjórn, konung, drottningu o.s.frv. ?
Svo væri gaman að hafa kvæðakvöld eins og nefnt var hér að ofan en vér veltum oss fyrir oss hvað átt sé við með því ? Upplestur á kveðskap héðan eða kveðskapur er verður til á staðnum ? Hvað ætli séu margir hér er geta framleitt slíkt á nokkrum sekúndum líkt og tíðkast á 'alvöru' hagyrðingamótum ? Starir þegjandi út í loftið
Annars gæti eitthvað svona e.t.v. líka hentað sem 'dagskrárliður' einhverntíma er Bagglýtingar hittast ? Lítilsháttar umræður um slíkt urðu hér:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=2679&postdays=0&postorder=asc&start=29
Veltir fyrir sér að skikka einhvern Bagglýting til að flytja út á land en koma svo í bæinn með reglulegu millibili
Steingelt er og steinrunnið
steindautt fjelag þetta
Verk hefur ekkert unnið
engar þarfir náð að metta