Ef guðspjallið, góði minn, lestu
grein þessa í minni þér festu:
um Jesú og Jósep
og jötu og sinnep
og steiktan frá Bæjarins beztu.
Baðir þú höndum í hringi
haldinn af golfmótastingi,
fullur sem svín
sötrandi vín;
Þá áttu heima á þingi.
Hvílík grenjandi gengdarlaus snilld
þessi gullvæga viðskiptavild!
Ég sett'ana að veði
og sjáðu hvað skeði
(þú sérð það í blaðinu Bild)!
Icesave-ið vakti upp argaþras
það ýfði upp sundrungu-kargafas
Það var víst snúið
snúðugt - nú búið
Á endanum öskruðu vargar - GAS.
Fagurt er limrunnar flæði
fegurri en laus bílastæði
betri en allt
sem býðst okkur falt
vænni en veraldleg gæði
snótir sem snapa sér kalla
og snarlega fyrir þeim falla
þessi ágætu sprund
sem að ylja um stund
hafa í raun enga galla
Þær snótir sem Upprifnum ylja
ættu að heyra og skilja:
Er gustar að vetri
er gæsasteik betri
en beinið sem buxurnar hylja
blóðfyllt í buxunum lafir
en beinstíft svo þolir ei tafir
þegar allt er að ske
býð ég falt fyrir fé
að brækur af skautinu skafir
Jón hann var skötu að skera
og skúringafötu að bera
hempan hans var
vot sem hann bar.
Var hann þá Jón eða Séra?
Fellt heft ég fjandi margt tárið
fellt hef ég næstum allt hárið
Ástæðan er
eymdin i mér.
Ég fékk ekki drátt þetta árið[
Fellt heft ég fjandi margt tárið
fellt hef ég næstum allt hárið
Ástæðan er
eymdin i mér.
Ég fékk ekki drátt þetta árið
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Þessa ættirðu að senda aftur inn um áramótin!
Vímus nú grætur af gleði
í gærkvöldi loksins það skeði.
Hún Dagfríður dó
Djö! hvað hann hló!
Hann tók hana bara á beði.
Vímus úr gulli er gerður,
grjóharður morgunsins-verður
Tæki sín tók
og tittlinginn skók
Til þess er leikur, hæ! Gerður. Útúrpía sem jafnvel getur sloppiðGlottir sjösinnum eins og fífl
Hvar er annars Haraldur Austmann?
Það var atvik sem gerði Gerði
grátlega afhuga Herði:
Hún fús vildi fá'ann
en fátið kom á'ann.
Hann faldi sig undir limgerði.
Mjög þreyttur á röfli og rexi
og rugluðu þrátti og pexi
þá nappaði kexi
víst karlinn hann Texi
úr krús sem úr gleri var plexi.
Þeir segja það sálina veikja
og spilla öllu þoli til leikja
En það er ekkert djók
ég elska hvern smók
og aldrei skal hætta að reykja.
Sem hlandbrunnar hænur þeir gala
og helling um Icesave nú mala
um þingsköp og þrug
og þessháttar rugl
því gerist ei rassgat í bala.
Eitt sinn ég slafraði freyju
urrandi spólgraða "meyju"
kafloðið var klof
það kvenlega hof
Alldays með blóðuga bleyju