Nei. Reyndar ekki. Nágranni minn sagði mér frá þessu og ég geri ráð fyrir því að hann hafi prufað þetta.
Hann er þannig typa.
Hö hö. Já aaaauðvitað prófaði 'nágranni' þinn þetta.
Blikkar hildisþorsta og gefur honum thumbs up merki
Einmitt. Við trúum þér. Öh hö.
flissar
flissar
Tók þig 2 mánuði að fatta þetta? Klappar Hórasi á bakið
Eða varstu bara að endurvekja þennan þráð?
flissar
Samfellt í 2 mánuði ?
Það var mikið að þið komið. Ég var alveg við að deyja aftur!
Það er augljóslega farið óttalega illa með illmennin okkar. Þetta er ekki vænlegt til þess að menn leiðist út í fólskuverk. Sem betur fer eru mér vitanlega öll almennileg illmenni á Baggalúti ódauðleg, svo það þarf vart að huga að nýliðun í greininni.
Ég hef nú geispað golunni nokkrum sinnum. Sem betur fer þá er ég endurvakinn í logum Baggalútíu Neðri skömmu síðar.
Jæja tímabært að endurvekja þráðinn.
Vissuð þið að maðurinn er eina skepnan sem hefur ekki bein í getnaðarlimnum.
Eina spendýrið þá ?
-
Hvað annað?
Ég hef bara alltaf gengið út frá því að það séu mörg dýr sem hafa getnaðarlim en hafi engin bein. T.d. köngulær. Ég er ekki viss um að það sé bein í getnaðarlim köngulóa. En hvað veit ég svosem.
-
Fuglar eru einnig með þetta. En frá því sem að ég hef heyrt, lesið og meðtekið þá heita þessir limir fugla ekki getnaðarlimir. Það sama má kannski segja um þessa limi köngulóa.
Ég hef bara alltaf gengið út frá því að það séu mörg dýr sem hafa getnaðarlim en hafi engin bein. T.d. köngulær. Ég er ekki viss um að það sé bein í getnaðarlim köngulóa. En hvað veit ég svosem.
-
Bíddu, bíddu bíddu - ég er náttla ekki jafnfróð og þið um getnaðarlimi roðnar og flissar ógurlega - dónaorð- tíhíhí en af þessu má ráða að þið teljið þá innihlda bein ?!?!? Hmm...hef nú bara aldrei heyrt annað eins en verð greinilega að gera rannsóknir í kvöld !
en af þessu má ráða að þið teljið þá innihlda bein ?!?
Við ? Hvaða við ? Ég sé ekki betur en Frelsishetjan sé sá eini sem hefur haldið fram að nokkurt dýr sé með bein í sprellanum. En ég hef aftur á móti sagt að ég viti svosem ekkert um það.
-
hmmm...uppáhaldssprellategundin mín er með einhvers konar frauðvef sem svo fyllist af blóði.....og verður uhu jafnvel svoldið beinlík viðkomu...uhu.
Veit annars ekki hvað Frelli er að leika sér með á síðkvöldum...
Samt - fyrst við erum í þessum umræðum þá langar mig að vita hvort þið getið svarað mér einu.. Hjá Sæhestum er það karlinn sem verpir eggjunum - ég hélt að hjá öllum dýrum (sér í lagi svona litlum þar sem kynfærin eru nú varla mjög háþróuð) væri það skilgreiningaratriði að kvenþjóðin sæi um svoleiðis. Vitið þið af hverju karlkyns sæhestur er karlkyns fyrst hann verpir eggjum ?