Tja verpir ekki hrygnan eggjunum í karldýrið sem síðan frjóvgar þau?
Veit ekki - eitthvað er það - en ef hún verpir eggjunum í karldýrið - er það þá ekki ósköp svipað venjulegri sæðingu ? Þ.e.svipað því sem karldýr af öðrum tegundum eru að gera ? Finnst þetta bara stórskrýtið...
Nei sjáðu til kvendýr framleiða egg, karldýr svil, þannig er nú skilgreiningin. Í tilviki sæhestanna sem, er jú stórfurðulegt þá framleiðir kvendýrið eggin eins og lög gera ráð fyrir og er því skilgreind sem kvendýr af þeim sökum, verpir svo eggjunum í karldýrið sem með svilum sínum frjóvgar egg kvendýrsins sem er þá sæðingin.
Ahh...ég skil - þú lítur líka út fyrir að vera mikill sérfræðingur á þessu sviði ! Samt furðulegt dýr !
þú lítur líka út fyrir að vera mikill sérfræðingur á þessu sviði !
Veit ekki alveg hvort hann á að vera stórlega móðgaður eða upp með sér, velur að sjálfsögðu seinni kostinn og þakkar pent fyrir sig.
Var nú bara vel meint svo að það er eins gott að þú takir því ekki illa ! Átti nú bara við að þú lítur út fyrir að vera víðförult kynjadýr og kæmi ekki á óvart þó að þú ættir nokkra sæhesta í baðkarinu.
Sæhesta í baðkarinu! Ha! Ég!? roðnar og flissar eins og smánykur