Það vildu allir sjá þig og þín var sárt saknað. Ég vill nú samt halda það að þú hafir verið þarna en þá undir formerkjum velunnara. Bara svo að þú þyrftir ekki fela þig fyrir blaðamönnum.
Þín var sárt saknað Glúmur minn, mætir bara næst...ef þú finnur þessa tímavél, þá skulum við bara drífa okkur á næstu árshátið saman ...hmmm...nei þú munt líklega ekki finna þessa tímavél í framtíðinni, því annars hefðirðu mætt á árshátíðina sem var um helgina...
hmm þversögn. Sem rennir enn meiri stoðum undir það að hann hafi verið "Gestur"
Þín var sárt saknað Glúmur minn, mætir bara næst...ef þú finnur þessa tímavél, þá skulum við bara drífa okkur á næstu árshátið saman ...hmmm...nei þú munt líklega ekki finna þessa tímavél í framtíðinni, því annars hefðirðu mætt á árshátíðina sem var um helgina...
En kannski einhver hafi stolið tímavél Glúms og komið með hennar aðstoð á árshátíðina Horfir eitthvað út í loftið og setur upp kæruleysislegan svip
Annars viljum vér benda þeim er misstu af árshátíðinni á þá merku staðreynd að það er líklega of seint fyrir þá að ætla að fara á hana núna (með því að smíða sér sjálfir tímavél). Ýmis fræðileg rök benda nefnilega til að sé á annað borð hægt að smíða tímavélar þá sé með þeirra aðstoð eigi unnt að komast lengra aftur í tímann en að því augnabliki er í fyrsta sinn var smíðuð tímavél. Þannig að ef enginn átti tímavél í upphafi árshátíðar er allt um seinan núna.
Af þessu leiðir annað merkilegt: Ef einhver hér rekst á tímaferðalang úr framtíðinni leiðir af því að nú þegar er búið að smíða heimsins fyrstu tímavél Hugsar til baka til árshátíðarinnar og veltir fyrir sér hvort einhverjir gesta líti út fyrir að geta hafa verið úr framtíðinni en man bara eftir 2-3 slíkum
Þakka ykkur strákar, ykkar var sárt saknað líka. Verst að hafa misst af öllu fjörinu, en það er svona, byltingin skipuleggur sig ekki sjálf. Pantar partýhatta á alla sem munu taka þátt
Oooo, bara þessu úldna flokkakerfi sem ég hef verið að æsa mig yfir undanfarið Æfir múgæsingarræðu
Ég skal taka þátt í múgæsingunni...ekki spurning, byrjar að espa sig upp...
Oooo, bara þessu úldna flokkakerfi sem ég hef verið að æsa mig yfir undanfarið Æfir múgæsingarræðu
Mér hefur dottið það í hug hvort að það sé beint samhengi með forsetakosningarnar og árshátíð Baggalúts. Svo ert þú núna að æfa múgæsingar.
Ertu nokkuð Ólafur R??
Mig grunar að hann gæti verið Össur eða Davíð.
Nei, ekki er ég Ólafur, Össur né Davíð. Þykir mér miður að mér sé líkt við slík ærulaus lítilmenni. Þó efast ég ekki um að þið séuð að hæðast að mér skrattakollarnir ykkar! Svo er ég líka þakklátur fyrir að þið hafið dregið aftur af ykkur í háðinu og ekki líkt mér við Björn "grasbít" Bjarnason enda hefði þá gamanið farið að kárna.
Ber að skilja þetta sem svo að þér séuð örugglega eigi Björn Bjarnason ?
Kannski er þetta Vígdís?
Hannes Hólm... ?
Hannes Hólm... ?
Hvessir augun leyftursnöggt á frelsishetjuna og mundar saltarann manstu eftir þessum?
sér getnaðarlega augnaráð Hannesar horfa upp og niður eftir stæltum líkama sínum Hannes minn ég er ekki svoleiðis strákur.
Slær saltaranum af svo miklu afli ofan á höfuð Frelsishetjunnar að það grefst minnst fet í jörðu Hættu svo að kalla mig Hannes, þú hníflótti roðamaur!
spýtir mold Jahh sumir kunna ekki að taka við neitun. Ég hef aldrei séð hann svona reiðan áður, það er spurning hvort að hommar fari á túr einu sinni í mánuði.
það er eins gott að kalla hann ekki hann + es þá verður hann alveg stjörnuvitlaus