Ég afsaka fávísi mína, en hver er landfræðileg lega Baggalútíu?
Hún er síbreytileg því Baggalútía fer stöðugt stækkandi.
Baggalútía liggur sunnan við smámennskuland. Austan við aulahæðir, Vestan við vanhæfisvelli og norðan við nánasafjöll. Vissuð þið þetta ekki? Leggur atlasinn frá sér og dæsir
Það er ómögulegt að segja enda er alltaf verið að færa Ísafjörð út um allt. Stundum vakna ég líka á Fáskrúðsfirði þegar ég fór að sofa við fjallsrætur í Montserrat.
En er eigi meira en lítið líklegt að þar sé um að kenna áhrifum drykkju ?
En er eigi meira en lítið líklegt að þar sé um að kenna áhrifum drykkju ?
Hmmm? Þér segið nokkuð. Hefur löngu tímabæra sjálfsskoðun og naflapot
Svo Baggalútía er bara svona hér og þar. Mér finnst þar reyndar bara fín niðurstaða.
Þar er líka gott að vera! Legst á bekkinn í garðskálanum
Tegir sig í veghornið og biður um slurk SKÁL!
Baggalútía hefur ef til vill ekki bjargföst geógrafísk landamæri heldur er hún hugmyndafræðileg útópía sem hægt og bítandi er verið að sía inn í hugarvitund hinna óinnvígðu.
Útópía ?! Hún er raunveruleiki ! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Útópía ?! Hún er raunveruleiki !
Legg til að við hefjum þegar í stað landvinningastríð á hendur Útópíu klórar sér í höfðinu, er Útópía ekki við hliðina á Ethópiu