...sem er virðingarvert. Óþolandi þegar fræga fólkið dembir öllum sínum sorgum og áhyggjum á herðar saklauss almúgans, sem á nóg með sitt.
Júlía, komstu að einhverju meiru um lífshætti dana? Hvað með skaplyndi og hernaðargetu?
Ég sá fyrir tilviljun til grænklæddra dáta að æfa e.k. hindrunarhlaup í gær. Mér fannst lítið til um tilþrifin, ævingasvæðið var hálfgerður almenningsgarður, 'hindranirnar' voru áþekkar þeim sem smáhundar skemmta sér við að stökkva yfir og stærstur hluti dátanna sátu og sóluðu sig saman í einum hóp. Af merkingum skildist mér að þetta væri sérstök lífvarðasveit konungsfjölskyldunnar. Ef rétt er, verður að teljast kraftaverk að þau haldi lífi og limum. Sauðir Doktorsins, jafnvel koktelsvín Muss S. Sein réðu við þessa aukvisa án nokkurra vandræða.
Annars kann ég bara vel við Dani, þetta eru svoddan meinleysisgrey, ligeglað og sífellt að hygge sig. Með öðrum orðum, auðveld bráð fyrir hernaðarveldið Baggalútíu
tekur upp þrjá GSM-síma og byrjar að hringja á fullu
Við skulum nú ekki gera lítið úr kokkteilsvínunum! Annars verður Vísindaráðuneytið mun öflugra þegar ÖrMVís sveitirnar ná fullum styrk.
Fjarri veri mér að gera lítið úr hinum öflugu og ágætu kokteilsvínum! Þau eru ein merkasta uppfinning allra tíma - og voðalega sæt!
hellir kláðadufti í íslensku ullarpeysurnar sem munu fara til Danmerkur
Þér virðist hafa lesið bókina mína lýtur höfði og gefur frá sér ánægjuandvarp
Eru öllum ráðherrum ekki úthlutuð kokeilsvínum fyrir lífvarðarsveitir? Ef ekki, hvað þarf að bjóða Muss til að fá slíka sveit?
Það er nú hægt að redda þessu. Þú færð svínin og vinnuna frítt, en það væri gott ef þú gætir staðið undir kóbaltþörfinni, sem er lítil, við að útbúa grísina rétt.
Velkomin kæra drottning hneigir sig í virðingarskyni og að sjálfsögðu skál
Það er nú hægt að redda þessu. Þú færð svínin og vinnuna frítt, en það væri gott ef þú gætir staðið undir kóbaltþörfinni, sem er lítil, við að útbúa grísina rétt.
Landbúnaðarráðuneytið mun láta yður í té ómælt magn af kóbalti til aðgerðanna (og allt gerum við fyrir Séntilfanta).
Eitthvað segir mér nú að hún sé vel kantskorin.
Vamban, það kemur sendiboði til þín með skókassa fullan af svínum eftir helgi.
Vamban, það kemur sendiboði til þín með skókassa fullan af svínum eftir helgi.
Voru skór af bergrisanum í þessum skókassa?
Vamban, það kemur sendiboði til þín með skókassa fullan af svínum eftir helgi.
Ég þakka pent.
Goggurinn hefur greinilega misst af þessum sjéntílfantsisma. Hvað er nú það?