Já skál kæri Númi, megi viðbótarárið færa þér visku og speki í ríkum mæli. Skál!
Skál! Dregur fram Admiral og Old Spice í kassavís
Og gersovel! Gefur Núma gjafakort að lífstíðar byrgðum af Aquavelva
Ooh, já, veitingarnar hvernig haga ég mér. Hafið engar áhyggjur það verða pulsur og kók á eftir og prins póló líka. Það voru því miður ekki til nein sogrör í kaupfélaginu en ég er hérna með hamar og nagla svo við getum bara gert göt á tappana, það er voða gaman líka.
Og til Hamingju Númi, ég vissi nú ekkert hvað ég átti að færa þér, það er að segja þangað til ég rakst á þetta.
Margfallt skál!
Bætir smá ákavíti í kókið sitt og þefar forvitinn af nýja Ice Blueinu hans Núma
Prozt. Prozt. Gemüglichkeit
Þýskugenið er eitthvað að stríða mér
Til hamingju með jólin allir sem einn, ég á hérna sæmilegan toll sem ég tók með mér frá Englalandi. Endilega svolgrið í ykkur smá Kaftein Morgun.
Heyrðu mig Zoidberg. Okkur vantar lækni á Árshátíðina. Endilega skráðu þig á skráningarþræðinum hér að ofan.
Nú þykja mér "undirmeðvitundarskilaboða" áróður Konungsins vera orðinn ansi "yfirmeðvitaður". Ertu líka í vinnu sem kosningasmali?
Sem formaður undirbúningsnefndar Árshátíðarinnar verð ég að ýta aðeins á óákveðið fólk svona af og til. Það kallar á áreiti bæði á undir og yfirmeðvitundir.
Væri þá ekki lang einfaldast að hafa undirskriftina þína stærri, þá einmitt hverfa líka skilaboðin eftir árshátíðina.
Ég tel það heppilegra að hafa þessa litlu fábreytilegu undirskrift en nota síðan persónuleg samskipti til að sannfæra viðkomandi endanlega. Annars verður þetta of vélrænt eitthvað.
Ahh vinnan tafði mig aðeins en ég kom með gjöf til þín. Til hamingju með afmælið kallinn minn. kyssir Núma á kinn, en mjög karlmannlega tjah ég er ekki frá því að þú hafir stækkað.
Víí! Til hamingju þú! felur sinn óboðna haus undir borði