Þar sem herferð mín gegn Strumpunum, fjendum Baggalútíu, hefur verið lukkuleg - jafnvel lukkulegri en Flóabardagi v4.0 - mun Vísindaráðuneytið gefa frá sér sérstaka útgáfu af s.k. „Strumpaópal“.
Mun þetta verða kóbaltbættur saltlakkrís, en eins og flestir vita er saltlakkrís flestra meina bót og með kóbalti því ábyggilega allra. Sérstaklega munu allir ráðherrar og aðrir háttsettir embættismenn fá vænan skammt afhentan í sérsmíðaðri og sérmerktri kóbaltöskju.
Kóbaltbættur saltlakkrís getur meðal annars bætt upp skallamyndun, getuleysi og bindindistilhneigingar.
Hugsar með sér hvort þetta sé virkilega besta leiðin til að láta dauða strumpa hverfa. Ætli bragðið skíni nokkuð í gegn?
Þetta mun vera hið besta mál og skiptir það oss litlu hvort í séu Strumpar eður ei. Allt er vænt er vel er kóbaltbætt.
Þú ert líka mjög mótfallinn skallamyndunum er það ekki?
Jú slík árátta er mér ekki að skapi.
Dásamlega falleg askja en er hægt að lata fylgja með eins og einn vindil til hátíðarbrigða Roðnar og flissar eins og smástelpa
Nei, þetta er, sko, strumpaópalaskja og því ekki viðð hæfi að hafa vindil með matvælunum.
Hvenær munu ráðherrar fá þessa kóbaltöskju afhenda? Eða eruð þið að leggja Gogginn í einelti? Fær grenjukast úti í horni
Er hún ekki komin? Þá hefur einhver brugðist mér! Kallar á sendiboðann og skýtur hann Alltaf þarf ég að gera allt sjálfur...
Prófaðu að nota bréfdúfu. Þær eru svo ódýrar.
Og gómsætar
Þær eru ekki mjög stundvísar og nákvæmar ef að Hóras er nálægt.
Sammála
Ósammála síðasta ræðumanni
Nei annars, sammála
Þú ert jafn óákveðinn og kvennsa.
Sorrí ég var að fasa yfir í og tilbaka á milli kynja, rofinn hérna er í ólagi
Hvar er rafvirkinn?