Þar sem ákveðnir annmarkar hafa uppgötvast á núverandi skósveinum mínum, óska ég eftir her skósveina. Frítt fæði og húsnæði. Allar upplýsingar veittar í Vísndaráðuneytinu.
Verða þeir búsettir á Seyðisfirði?
Já, svona meðal annars. Það er reyndar frekar mikill húsnæðisskortur þar í augnablikinu, en eftirlifandi íbúar munu reisa bragga þar innan skamms.
Ansans árans! Er skortur á skósveinum? Ég býð betur: fyrsti skósveinn til að skrá sig fær að sitja frammí Vísindaráðuneytislimmanum, í stað þess að þurfa að hlaupa með, og fær gallonsflösku af kornbrennivíni annan hvern sunnudag.
ég skal vera skósveinn.... en ég bið um skó í ráðningasamningnum og 50. hvern sunnudag í frí af því að þá þarf ég að fara í sturtu.
heyrðu muss má ég kaupa sál skósveins þíns
ég skal vera skósveinn.... en ég bið um skó í ráðningasamningnum og 50. hvern sunnudag í frí af því að þá þarf ég að fara í sturtu.
Hmmm... Hefurðu meðmæli?
Má ég vera mótmælandi?
Vissulega. Ég vil ekki ráða neinn til starfans nema vitandi að hann hafi viðeigandi reynslu og lunderni.
En að sameina illsku og grimmd vora? Hvorugur okkar hefur nógu lítið egó til að vera skósveinn hins og því legg ég til að vér sameinum krafta okkar og látum dusilmennskuna dynja á óvinum vorum. Hvað finnst yður um þetta?
Það er ekki ónýtt að vera í bandalagi við mesta snyrtimenni Baggalútíu og landbúnaðarráðherra í þokkabót! Það er því ákveðið að minni hálfu.
Ég er samt að leyta að skósveinum. Mig vantar einhvern sem skríður fyrir mér og getur sinnt minniháttar og handvirkari illsku.
Nú þurfum vér stefnuskrá og gott nafn. Ég mæli með "Séntilmenni og Hrottar ehf.".
Þetta hljómar hreint prýðilega. En hvað um „Heiðursfantar ehf.“?
Lýsist upp af sjálfsánægju vegna réttrar gæsalappa notkunar
Já, eða Séntilfantar eða Heiðurshrottar?
Ég er reyndar ákaflega hrifinn af orðinu fantur. Það er eitt af mest Cockney orðunum í íslensku.
hljómar alls ekkert illa, ég er til í hvað sem þið byðjið mig um að gera verð svo spenntur að ég fer með 10 púka og læt þá inná H***
Ég er reyndar ákaflega hrifinn af orðinu fantur. Það er eitt af mest Cockney orðunum í íslensku.
Getum vér þá ekki sameinast um nafnið Séntilfantar?
Það er reyndar einkar hljómfagurt og hlýtur því náð mína.